Tillaga um flokkun úrgangsstrauma við byggingarframkvæmdir.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
7. (885). fundur
Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu er hún flytur ásamt Jónu Sæmundsdóttur.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela tækni- og umhverfissviði að skoða möguleika á útfærslu skilmála er snúa að flokkun úrgangsstrauma við byggingarframkvæmdir í sveitarfélaginu."
Greinargerð:
Á tímum aukinnar sjálfbærni og hringrásarhagkerfis er mikilvægt að horft sé á alla þætti. Garðabær hefur sett sér skýra stefnu í úrgangsmálum og á Alþingi er unnið að nýrri löggjöf um úrgang. Nágrannaþjóðir okkar hafa gert mun strangari kröfur á byggingaraðila hvað varðar flokkun úrgangs og þróunin er hröð. Það er því vel við hæfi að Garðabær taki stærri skref með því að þróa og innleiða skilmála er snúa að flokkun úrgangsstrauma þar sem umhverfisþættir fái meira vægi og verði hluti útboðsgagna.
Tillagan samþykkt samhljóða.