Beint í efni

Hólmatún 25 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2102057

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

6. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

5. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hólmatúns sem nær til parhúslóðarinnar Hólmatún 25 að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir tveimur smáhýsum á lóð allt að 20 m2 að samanlögðum grunnfleti. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting á deiliskipulagi Hólmatúns í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.1213/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

5. (883). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hólmatúns í tilefni umsóknar um leyfi fyrir smáhýsi á lóðinni við Hólmatún 25. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Hólmatúns 6.8.10.10a,23a,24,26 og 29. (Mál nr. 2102057)

Bæjarráð Garðabæjar

04

10. (1968). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hólmatúns í tilefni umsóknar um leyfi fyrir smáhýsi á lóðinni við Hólmatún 25. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Hólmatúns 6.8.10.10a,23a,24,26 og 29.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

4. fundur

Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir gróðurhúsi 3x4,5 m að grunnfleti (13,5 m2) á parhúslóðinni Hólmatún 25. Fyrir er á lóðinni smáhýsi sem er um 8 m2 að grunnfleti.
Ekki er kveðið á um smáhýsi í deiliskipulagi Hólmatúns.
Þar sem að um annað smáhýsi á lóð er að ræða leggur skipulagsnefnd til að gerð verði sú breyting á deiliskipulagi Hólmatúns sem nær til lóðar nr.25 að heimilt verði að reisa allt að tvö smáhýsi sem séu ekki stærri en 20 m2 að samanlögðu flatarmáli.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hólmatúns í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Hólmatúns 6,8,10,10a,23a,24,26 og 29.
Áður en grenndarkynning er framkvæmd skal samþykki eigenda hins hluta parhússins liggja fyrir.