Strönd, 225 Garðabæ - gestastofa, Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
6. fundur
Lögð fram ný tillaga í kjölfar svars við fyrirspurn um smáhýsi. Að þessu sinni er lögð til viðbygging við vesturgafl íbúðarhússins.
Svar: Skipulagsstjóri leggur til að sótt verði um byggingarleyfi fyrir viðbyggingunni og að því fylgi ásamt grunnmynd, útlitsmynd og sneiðing og afstöðumynd sem sýni fjarlægð viðbyggingar að lóðarmörkum og aðliggjandi húsi.Þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu þarf að taka afstöðu til þess hvort byggingarleyfisumsókn verði vísað til grenndarkynningar.
Vísað til skipulagsnefndar.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
5. fundur
Lögð fram fyrirspurn eiganda Strandar við Höfðabraut á Álftanesi hvort heimilað verði að reisa smáhýsi á lóðinni sem ætlað er til íveru (gestahús). Flatarmál yrði 15 m2.
Svar skipulagsstjóra: Þar sem að húsið er ætlað til íveru gilda ekki ákvæði byggingarreglugerðar um smáhýsi á lóð sem undanþegin eru byggingarleyfi. Þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu og þar af leiðandi enginn byggingarreitur skilgreindur þurfa allar byggingarleyfisumsóknir að undirgangast grenndarkynningarferli í samræmi við 44.gr.skipulagslaga. Ef tillögu er vísað til grenndarkynningar í samræmi við framangreinda grein þá þarf tillagan að vera í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Tvö hús á lóð ætluð til íveru (íbúðarhús og gestahús) geta seint talist til sama byggðamynsturs og byggð við Höfðabraut. Öðru máli gegnir um viðbyggingu við húsið.
Tillaga að deiliskipulagi svæðisins er í mótun en það er ekki sennilegt að samþykkt verði að heimila aukahús á lóð til íveru þar sem það hefði mikið fordæmisgildi í einbýlishúsabyggð.
Ef eingöngu er horft til staðsetningu smáhýsis sem ekki er ætlað til íveru er tillaga A ekki æskileg vegna nándar við næsta hús og staðsetningar í bili milli húsa, tillaga C kæmi til greina ef smáhýsið stendur lágt í landi og spillir ekki útsýni frá næsta húsi. Tillaga B væri æskilegasta staðsetningin en kallar á góða lausn ef ekki á að raska ásýnd hússins.