Kauptún 5. Bráðabirgðahúsnæði fyrir leikskóla í Urriðaholt. Breyting á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluti
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
1. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðar fyrir þjónustubyggingu neðst á útivistarsvæðinu í nyrðri græna geiranum. Lóðin kallast Holtsvegur 22 samkvæmt gildandi deiliskipulagi en tillaga gerir ráð fyrir á lóðin verði kölluð Kauptún 5.
Í deiliskipulagsbreytingunni felst breyting á lögun lóðar og byggingarreits fyrir þjónustubyggingu.
Stærð lóðar er óbreytt 1.341 m². Lögun byggingarreits breytist til samræmis við lögun lóðar.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins er grenndarkynning felld niður í samræmi við 2.ml.3.gr.44.gr.sömu laga.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarráð Garðabæjar
03
4. (2011). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu um staðsetningu leikskóla sem byggður verður úr húseiningum á þjónustulóð á útvistarsvæði í Urriðaholti (Holtsvegur 22). Leitað verður verðtilboða í leigu á einingum sem reistar verða á lóðinni með lóðarréttindum.
Bæjarstjóri kynnti hugmyndir um að kanna möguleika á að leita til áhugasamra aðila um rekstur leikskólans.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs fór nánar yfir möguleika varðandi samstarfsaðila um rekstur leikskólans.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að auglýsa eftir áhugasömum aðilum til að koma að viðræðum um rekstur leikskólans.
Svanhildur Þengilsdóttir, vék af fundi kl. 09:00.