Beint í efni

Málefni hjóna sem voru dagforeldrar - Beverly Gíslason og Einar Gíslason

Málsnúmer 2111374

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

8. (904). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

02

16. (2023). fundur

Á fund bæjarráð kom Ellý Alda Þorsteinsdóttir og gerði grein fyrir úttekt vegna starfsemi sem fram fór í daggæslu og á leikskóla sem rekin var í Garðabæ með hléum á árunum 1996-2014.

Meginniðurstaða úttektarinnar er að á grunni þeirra gagna sem safnað hefur verið liggja ekki fyrir upplýsingar eða vísbendingar um að í umræddri starfsemi hafi börnum sem voru í vistun verið beitt ofbeldi utan lýsingar á tveimur atvikum frá einum starfsmanni. Í úttektinni er að finna ákveðna fyrirvara sem mikilvægt er að hafa í huga varðandi niðurstöðu.

Í úttektinni er sérstök grein gerð fyrir hvernig eftirliti var háttað á sínum tíma og breyttu verklagi samkvæmt verklagsreglum sem lagðar eru til grundvallar nú.

Úttektin verður kynnt foreldrum og öðrum aðilum sem rætt hefur verið við í tengslum við gerð úttektarinnar.

Á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið var Sigríður Logadóttir, persónuverndarfulltrúi og lögfræðingur.

Fylgiskjöl