Beint í efni

Lyngás 7-9. Breyting á deiliskipulagi Ása og Grunda

Málsnúmer 2112033

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

8. (904). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

02

16. (2023). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðanna við Lyngás 7 og 9 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

5. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til lóðarinnar Lyngás 7-9 að lokinni auglýsingu í samræmi við 41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Um er að ræða tillögu að breytingu á fyrri breytingu á byggð sem nær til byggðar við Eskiás og lóðir við Lyngás að ofanverðu (nr. 7-9, 13,15 og 17)
Greinargerð deiliiskipulagsins eftir breytingu verður með auðkennisnúmer 0.7.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
1- Í kafla 2.5.3 er orðinu "húsnæði"; breytt í "atvinnuhúsnæði";.
2- Lóðirnar Lyngás 7 og 9 eru sameinaðar. Heildarfjöldi fermetra fyrir atvinnu og íbúðir sem og fjöldi íbúða er óbreyttur fyrir sameinaða lóð. Stærðartöflu í kafla 4.4.3 er breytt þar sem lóðir og heildarbyggingarmagn er lagt saman í eina lóð. Villa í útreikningi lagmarksfjölda bílastæða fyrir Lyngás er leiðrétt í töflunni.
3- Í kafla 4.4.5 er tekin út setning um bílastæði við Eskiás sem ekki á við þennan kafla, en bætt við setningu um bílastæði við Lyngás og Stórás.
4- Bætt er við orðunum "fyrir íbúðir" í umfjöllun um djúpgáma í kafla 4.4.6.
5- Bætt er við nýjum kafla: "4.4.8 Sérákvæði fyrir Lyngás 7-;9"
6- Kafli 4.5 er uppfærður og heitir núna Veitustöðvar. Lóðirnar eru nú tvær, Eskiás 3a og 3b, skv. breytingu sem gerð var á deiliskipulagi og auglýst í B-;deild Stjórnartíðinda 06.09.2021.
Breyting á uppdrætti nær aðeins til lóðarinnar Lyngás 7-9 og gangstétta meðfram lóðarmörkum við Lyngás og Stórás.
Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu deiliskipulags Ása-og Grunda í samræmi við 41.grein Skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

2. (898). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem gerir m.a. ráð fyrir sameiningu lóðanna við Lyngás 7 og 9. (Mál nr. 2112033)

Bæjarráð Garðabæjar

05

4. (2011). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem gerir m.a. ráð fyrir sameiningu lóðanna við Lyngás 7 og 9.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulag Ása- og Grunda. Um er að ræða tillögu að breytingu á fyrri breytingu á byggð sem nær til byggðar við Eskiás og lóðir við Lyngás að ofanverðu (nr. 7-9, 13,15 og 17)
Skilmálar eftir breytingu yrðu með auðkennisnúmer 0.7.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
1 Í kafla 2.5.3 er orðinu „húsnæði“ breytt í „atvinnuhúsnæði“.
2 Lóðirnar Lyngás 7 og 9 eru sameinaðar. Heildarfjöldi fermetra fyrir atvinnu og íbúðir sem og
fjöldi íbúða er óbreyttur fyrir sameinaða lóð. Stærðartöflu í kafla 4.4.3 er breytt þar sem lóðir
og heildarbyggingarmagn er lagt saman í eina lóð. Villa í útreikningi lagmarksfjölda bílastæða
fyrir Lyngás er leiðrétt í töflunni.
3 Í kafla 4.4.5 er tekin út setning um bílastæði við Eskiás sem ekki á við þennan kafla, en bætt
við setningu um bílastæði við Lyngás og Stórás.
4 Bætt er við orðunum „fyrir íbúðir“ í umfjöllun um djúpgáma í kafla 4.4.6.
5 Bætt er við nýjum kafla: „ 4.4.8 Sérákvæði fyrir Lyngás 7‐9“.
6 Kafli 4.5 er uppfærður og heitir núna Veitustöðvar. Lóðirnar eru nú tvær, Eskiás 3a og 3b, skv.
breytingu sem gerð var á deiliskipulagi og auglýst í B‐deild Stjórnartíðinda 06.09.2021.

Breyting á uppdrætti nær aðeins til lóðarinnar Lyngás 7-9 og gangstétta meðfram lóðarmörkum við Lyngás og Stórás.

Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr. skipulagslaga nr.123/2010.