Leiksvæði í Urriðaholti. Deiliskipulagsbreyting. Urriðaholt vesturrhluti.
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
7. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluta og Urriðaholts austurhluta að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir tilfærslu og stækkun á leiksvæði á opnu svæði milli Kinnargötu 16 og 18 og ofan við húsin að Dýjagötu 13 og 15.
Athugsemd barst innan tilskilins frests.
Tillögu og athugasemd vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
7. (903). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta og vesturhluta Urriðaholts er varðar afmörkun deiliskipulagssvæðanna. (Mál nr. 2203574)
Bæjarráð Garðabæjar
04
16. (2023). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta og vesturhluta Urriðaholts er varðar afmörkun deiliskipulagssvæðanna.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
5. fundur
Lagðar fram tvær tillögur að breytingu deiliskipulags; annarsvegar á (1.áfanga) Austurhluta Urriðaholts og hinsvegar á Vesturhluta Urriðaholts.
Í fyrri tillögunni sem nær til Austurhluta Urriðaholts er gert ráð fyrir að afmörkun deiliskipulagssvæðisins til vesturs breytist lítillega. Deiliskipulagssvæðið minnkar um 778 m². Grænn geiri sem áður var að hluta til innan deiliskipulagsmarka Austurhluta og að hluta innan Vesturhluta verður nú að öllu leyti innan deiliskipulagsmarka Vesturhluta.
Í síðari tillögunni sem nær til Vesturhluta Urriðaholts er gert ráð fyrir stækkun deiliskipulagssvæðisins til austurs um 778 m2 sem nemur því svæði sem fyrri tillaga gerir ráð fyrir. Gert verður ráð fyrir stærra leiksvæði á græna geiranum neðan Kinnargötu á milli húsa númer 16 og 18, ofan við húsin Dýjagata 13 og 15.
Skipulagsnefnd vístar báðum tillögum til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr. og 41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.