Beint í efni

Opnun tilboða í framkvæmdir við 2. áfanga Urriðaholtsskóla.

Málsnúmer 2202458

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

24. (2031). fundur

Eftirfarandi tilboð lögð fram í framkvæmdir við 2. áfanga Urriðaholtsskóla.

ÞG verktakar ehf. kr. 2.837.139.265
GG verk ehf. kr. 2.946.059.436

Kostnaðaráætlun kr. 2.353.551.310

Tilboð barst frá Spartsli og málningu ehf. þar sem eingöngu var boðið í málningarþátt útboðsins og telst tilboðið ógilt.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda ÞG verk ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

8. (904). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

03

17. (2024). fundur

Lögð fram og kynnt greinargerð KPMG um sérstakt mat á áhrifum framkvæmda við 2. áfanga Urriðaholtsskóla á fjárhag sveitarfélagsins í samræmi við ákvæði í 66. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Megin niðurstaðan er að miðað við fjárhagsstöðu sveitarfélagsins skv. ársreikningi 2021 og fjárhagsáætlun 2022-2025 er útlit fyrir að sveitarfélagið get vel staðið undir fyrirhuguðum framkvæmdum og rekstrarkostnaði vegna 2. áfanga í Urriðaholtsskóla.

Bæjarstjóri upplýsti að bókfærður heildarkostnaður við byggingu Urriðaholtsskóla er nú um 2,6 milljarðar og að framlag Urriðaholts ehf. nemur um 1,5 milljarði.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að auglýsa útboð framkvæmda við byggingu 2. áfanga Urriðaholtsskóla.

Bæjarráð Garðabæjar

04

16. (2023). fundur

Lagt fram yfirlit yfir helstu stærðir og dagsetningar vegna fyrirhugaðs útboðs á 2. áfanga Urriðaholtsskóla - uppsteypa og fullnaðarfrágangur.

Bæjarstjóri upplýsti að KPMG er að vinna að greinargerð vegna mats á áhrifum framkvæmdarinnar á fjárhags sveitarfélagsins, sbr. 66. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011.

Þá voru lögð fram drög að kafla 0 í útboðslýsingu.