Tilboð í framkvæmdir við byggingu leikskóla í Urriðaholti.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
27. (2034). fundur
Bæjarstjóri upplýsti um samkomulag við lægstbjóðanda Fortis ehf. þar sem félagið fellur frá tilboði sínu í framhaldi af ákvörðun kærunefndar útboðsmála frá 14. júlí sl. um að hafna kröfu Garðabæjar um að aflétta sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar vegna útboðs.
Eitt annað tilboð barst í útboðinu frá Þarfaþingi hf. að fjárhæð kr. 1.489.083.561.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Þarfaþings hf., enda falli félagið frá kæru til kærunefndar útboðsmála í málinu. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins.
Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram svohljóðandi bókun.
„Niðurstaða kærunefndar útboðsmála um að aflétta ekki stöðvun samningsgerðar vegna útboðs byggingar og fullnaðarfrágangs leikskólans í Urriðaholti staðfesti því miður àhyggjur okkar í Viðreisn um að enn og aftur hafi ekki verið vandað nægjanlega til verka við framkvæmd útboðs. Nú vegna framkvæmda nýs leikskóla í Urriðaholti.
Viðreisn ítrekar enn og aftur þá hvatningu til meirihlutans, fulltrúa Sjálfstæðisflokksins að standa vörð um fagleg vinnubrögð þegar kemur að framkvæmd útboða og tryggja að farið sé að lögum um opinber innkaup."
Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi Viðreisnar
Björg Fenger, lagði fram svohljóðandi bókun.
„Við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins viljum árétta að eðlilega var staðið að útboði á framkvæmdum við leikskólann Urriðaból. Öll málsmeðferð í útboðsferlinu og eftir að kæra barst miðaði að því að gæta hagsmuna bæjarins í hvívetna bæði varðandi fjárhagslega og lagalega þætti.
Nú liggur fyrir að lægstbjóðandi hefur fallið frá tilboði sínu og að hinn bjóðandinn standi við sitt tilboð. Með því að taka því tilboði og hefja framkvæmdir hið fyrsta mun leikskólastarf í Urriðabóli við Holtsveg hefjast á haustdögum 2023 eins og áformað hefur verið."
Björg Fenger, Gunnar Valur Gíslason og Margrét Bjarnadóttir, bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins.
Bæjarráð Garðabæjar
03
18. (2025). fundur
Lögð fram eftirfarandi tilboð í framkvæmdir við byggingu leikskóla í Urriðaholt ? Urriðaból.
Þarfaþing hf. kr. 1.489.083.561
Fortis ehf. kr. 1.448.688.779
Kostnaðaráætlun kr. 1.189.168.816
Lagt fram minnisblað Juris og exa nordic ehf., dags. 16. maí 2022.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Fortis ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Bæjarráð Garðabæjar
04
17. (2024). fundur
Á fundi bæjarráðs 3. maí sl. voru lögð fram eftirfarandi tilboð í framkvæmdir við byggingu leikskóla í Urriðaholti - Urriðaból.
Þarfaþing hf. kr. 1.489.083.561
Fortis ehf. kr. 1.448.688.779
Kostnaðaráætlun kr. 1.189.168.816
Deildarstjóri umhverfis- og framkvæmda gerði grein fyrir viðræðum við lægstbjóðanda. Niðurstaða liggur ekki fyrir og er afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Bæjarráð Garðabæjar
05
16. (2023). fundur
Lögð fram eftirfarandi tilboð í framkvæmdir við byggingu leikskóla í Urriðaholt - Urriðaból.
Þarfaþing hf. kr. 1.489.083.561
Fortis ehf. kr. 1.448.688.779
Kostnaðaráætlun kr. 1.189.168.816
Bæjarráð felur bæjarverkfræðingi að ræða við lægstbjóðanda varðandi skilyrði samkvæmt skilmálum útboðsins.