Póstbox í Garðabæ - Íslandspóstur
Málsnúmer 2202128
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
4. fundur
Sólveig Jóhannsdóttir greindi frá þeirri vinnu sem hefur farið fram við greiningu á þörf og staðsetningu fyrir póstbox á vegum Íslandspósts í bænum. Vísað til frekari úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.
Bæjarráð Garðabæjar
02
6. (2013). fundur
Í erindinu eru kynntar hugmyndir Íslandspósts um breytingar á póstþjónustu sem gerir ráð fyrir að afgreiðslu póstsins í Litlatúni verði lokað en í þess stað verði sett upp póstbox á fjórum stöðum í Garðabæ þar sem þar sem einstaklingar geta móttekið póstsendingar.
Bæjarráð vísar erindinu til tækni- og umhverfissviðs varðandi tillögur að nánari staðsetningu póstboxa.