Hönnun - Útboð - Efnislosun í Rjúpnadal
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
6. (902). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi vegna efnislosunar í Rjúpnadal á svæði þar sem fyrirhugaður er kirkjugarður. Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulagsáætlanir sem bæjarstjórn hefur samþykkt og hafa tekið gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda nr. 407/2021. (Mál nr. 2112150)
Bæjarráð Garðabæjar
02
12. (2019). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi vegna efnislosunar í Rjúpnadal á svæði þar sem fyrirhugaður er kirkjugarður. Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulagsáætlanir sem bæjarstjórn hefur samþykkt og hafa tekið gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda nr. 407/2021.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
4. fundur
Lögð fram umsókn um veitingu framkvæmdaleyfis fyrir efnislosun í Rjúpnadal á því svæði sem skipulag gerir ráð fyrir kirkjugarði. Gögn eru í samræmi við deiliskipulag.
Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdaleyfi í samræmi við framlögð gögn sbr.13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.