Beint í efni

Grímsgata 2-4. Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Málsnúmer 2112324

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

8. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

02

23. (2030). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsstjóra um óverulega breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Grímsgötu 2-4, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan gerði ráð fyrir hljóðvarnarvegg 1,3 metra á hæð meðfram Urriðaholtsstræti ofan við lóðina við Grímsgötu 2-4. Tillagan var grenndarkynnt og barst athugasemd frá íbúa við Urriðaholtsstræti 28. Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsstjóra um að taka tillit til athugasemdarinnar og lækka vegginn úr 1,3 m í 1,0 m.
Samþykkt tillaga um deiliskipulagsbreytingu skal send Skipulagsstofnun og auglýsing birt í B-deild Stjórnartíðinda.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

03

7. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4 sem gerir ráð fyrir hljóðvarnarvegg meðfram Urriðaholtsstræti ofan Grímsötu að lokinni grenndarkynningu. Einnig lögð fram athugasemd frá íbúum að Urriðaholtsstræti 28 sem gera athugasemd við tillöguna.
Skipulagsnefnd vísaði málinu til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Niðurstaða skoðunar er sú að veggurinn mun hafa óveruleg áhrif á útsýni þegar fjölbýlishúsið að Grímsgötu 2-4 verður risið í samræmi við gildandi deiliskipulag.
Engar breytingar hafa átt sér stað hvað ákvæðu fjölbýlishússins að Grímsgötu 2-4 eins og ýjað er að í athugasemd.
Skipulagsstjóri leggur til að sú breyting verði gerð á tillögunni að hæð hljóðveggjar verði 1,0 metri í stað 1,3 eins og grenndarkynnt tillaga gerði ráð fyrir.
Skipulagsstjóri leggur til við bæjarráð að tillagan verði samþykkt með ofangreindri breytingu sem óveruleg breyting deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4 í samræmi við 41.grein skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

6. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu.
Athugasemd hefur borist innan tilskilins frests og hún lögð fram.
Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

6. (902). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna kvaðar um 1 m háan hljóðvegg við horn Urriðaholtsstrætis og Grímsgötu, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Urriðaholtsstrætis 26,28,30,32,34 og 36 og Vörðugötu 2. (Mál nr. 2112324)

Bæjarráð Garðabæjar

06

12. (2019). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna kvaðar um 1 m háan hljóðvegg við horn Urriðaholtsstrætis og Grímsgötu, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Urriðaholtsstrætis 26,28,30,32,34 og 36 og Vörðugötu 2.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

4. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 4 sem gerir ráð fyrir kvöð um 1 m háan hljóðvegg við horn Urriðaholtsstrætis og Grímsgötu eins og gert er ráð fyrir í deiliskipulag við Lautargötu.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4 í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Urriðaholtsstrætis 26,28,30,32,34 og 36 sem og Vörðugötu 2.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

3. fundur

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa að Grímsgötu 2-4 um það hvort til greina komi að deiliskipulag geri ráð fyrir hljóðvörn við Urriðaholtsstræti eins og dæmi eru fyrir í nágrenninu. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.