Beint í efni

Mosagata leiksvæði. Breyting á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluti

Málsnúmer 2108621

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. (902). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts. Tillagan var auglýst. Ein athugasemd barst og hefur verið tekið tillit til hennar sbr. umsögn deiliskipulagshöfundar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að svari við innsendri athugasemd og deiliskipulagið með breytingu í samræmi við umsögn deiliskipulagshöfundar.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær. (Mál nr. 2108621)

Bæjarráð Garðabæjar

02

12. (2019). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts. Tillagan var auglýst. Ein athugasemd barst og hefur verið tekið tillit til hennar sbr. umsögn deiliskipulagshöfundar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að svari við innsendri athugasemd og deiliskipulagið með breytingu í samræmi við umsögn deiliskipulagshöfundar.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

4. fundur

Lögð fram tillaga að breyting deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir að göngustígur frá Mosagötu að göngustíg á milli lóða við Mosagötu og Holtsveg falli út ásamt leiksvæði. Um leið breytast mörk lóðarinnar Mosagata 4 sem stækkar til norðvestur.
Lögð fram athugasemd sem borist hefur ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar þar sem brugðist er við athugasemdinni.
Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar samþykkir skipulagsnefnd tillöguna sem breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipualgslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

2. fundur

Tillaga lögð fram að lokinni auglýsingu ásamt athugasemd sem borist hefur.
Tillögu ásamt athugasemd vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

17. (895). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir breytingu á göngustíg, leiksvæði o.fl. á svæði við Mosagötu. (Mál nr. 2108621)

Bæjarráð Garðabæjar

06

46. (2004). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir breytingu á göngustíg, leiksvæði o.fl. á svæði við Mosagötu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

14. fundur

Lögð fram tillaga að breyting deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem gerir ráð fyrir að göngustígur frá Mosagötu að göngustíg á milli lóða við Mosagötu og Holtsveg falli út ásamt leiksvæði. Um leið breytast mörk lóðarinnar Mosagata 4 sem stækkar til norðvestur.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

11. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta.
Í deiliskipulagsbreytingunni felst að göngustígur milli lóða Mosagötu 2 og 4 og leiksvæði milli lóða Mosagötu 2 og 4, Hellagötu 31 og Holtsveg 27 eru felld niður.

Árið 2014 var gerð breyting í enda Mosagötu þar sem gert er ráð fyrir leiksvæði og stígatengingar milli Mosagötu og tengistígs milli lóða við Mosagötu og Holtsvegar. Það leiksvæði og stígtenging sem tillaga gerir ráð fyrir að felld verði niður eru mjög óhentug í útfærslu.

Málinu vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.