Beint í efni

Vörðugata 2 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Málsnúmer 2212201

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

1. (916). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að um sé að ræða stækkum byggingarreits bílakjallara neðanjarðar í fjölbýlishúsinu að Vörðugötu 2 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“ (Mál nr. 2212201)

Bæjarráð Garðabæjar

02

3. (2056). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að um sé að ræða stækkum byggingarreits bílakjallara neðanjarðar í fjölbýlishúsinu að Vörðugötu 2 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

1. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

1. fundur

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um byggingarreit bílakjallara ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað útfærslu byggingarreits bílakjallara varðar eins og fram kemur í fyrirspurn.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

05

13. fundur

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu byggingarinnar. Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.