Dreyravellir 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
14. fundur
Lögð fram endurbætt tillaga sem fylgir umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á hesthúsinu að Dreyravöllum 5.
Skipulagsnefnd telur að útfærslan sé í samræmi við ný ákvæði deiliskipulags um þakform eldri hesthúsa í Andvarahverfi og gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
11. fundur
Lög fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á hesthúsinu að Dreyravöllum 5. Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á þaki sem er ekki í samræmi við ákvæði deiliskipulags um þakform og kallar því á breytingu deiliskipulags.
Vísað til frekari skoðunar hjá umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
9. fundur
Lögð umsókn um breytingu deiliskipulags Kjóavalla þar sem gert verði ráð fyrir að hluti húss geti orðið tveggja hæða svo unnt sé að útbúa setustofu og kaffistofu á efri hæð. Heimilt yrði að hækka hámarkshæð og breyta gerð þaks.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir því að skipulagsráðgjafi vinnur að mótun tillögu sem ætlað er að auka svigrúm hesthúseigenda í Andvarahverfi til þess að útbúa kaffistofur á efri hæð en standa um leið vörð um svipmót hesthúsa.
Kvistir hafa verið útbúnir að Dreyravöllum 3, Fluguvöllum 4 og Andvaravöllum 3. Voru umsóknir grenndarkynntar í tveimur tilfellum en að Dreyravöllum 3 var umsókn samþykkt án undangenginnar grenndarkynningar.
Skipulagsnefnd telur að það sé talsverður munur á útfærslu framlagðra uppdrátta að Dreyravöllum 5 heldur en í hinum tillögunum þar sem að ekki er um kvist að ræða heldur aðra hæð.
Skipulagsnefnd er ekki reiðubúin að vísa tillögunni með þessari útfærslu til grenndarkynningar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
1. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir þaki og risi sem er hærra en deiliskipulag heimilar.
Tillögu er vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar ásamt þeirri hugmynd hvort hugsanlegt væri að breyta deiliskipulagi hesthúsahverfisins hvað þetta varðar.