Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Miðskóga vegna lóðarinnar við Miðskóga 17.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
14. (2067). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Miðskóga vegna lóðarinnar við Miðskóga 17. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
5. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Miðskóga að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Miðskóga.
Guðrún Dóra vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
1. (916). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Miðskóga í tilefni umsóknar um viðbyggingu við núverandi einbýlishús við Miðskóga 17. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum og íbúum að Miðskógum nr. 9, 11, 15, og 19.“ (Mál nr. 2209581)
Bæjarráð Garðabæjar
04
3. (2056). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Miðskóga í tilefni umsóknar um viðbyggingu við núverandi einbýlishús við Miðskóga 17. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum og íbúum að Miðskógum nr. 9, 11, 15, og 19.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
1. fundur
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu fyrir viðbyggingu með léttu yfirbragði sem er lægri en íbúðarhúsið.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Miðskóga í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal íbúum og eigendum við Miðskóga nr.9,11,15 og 19.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
10. fundur
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir stækkun byggingareits út á framlóð vegna áforma um viðbyggingu.
Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.