Beint í efni

Þorraholt 1 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Málsnúmer 2211068

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

1. (916). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts varðandi lóðina við Þorraholt 1, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, Breytingin felst í að falla frá kröfu um eitt stæði í bílakjallara fyrir tveggja herbergja íbúðir og mæta bílastæða þörf þeirra utandyra.
Skipulagsnefnd samþykkir samkvæmt í heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda/lóðarhafa.“ (Mál nr. 2211068)

Bæjarráð Garðabæjar

02

3. (2056). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts varðandi lóðina við Þorraholt 1, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, Breytingin felst í að falla frá kröfu um eitt stæði í bílakjallara fyrir tveggja herbergja íbúðir og mæta bílastæða þörf þeirra utandyra.
Skipulagsnefnd samþykkir samkvæmt í heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda/lóðarhafa.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

1. fundur

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa fjölbýlishúsalóðarinnar Þorraholt 1 ásamt umbeðinni umsögn deiliskipulagshöfundar, Batterísins ehf.
Í kafla 4.2.5 í skilmálum samþykkts skipulags fyrir Hnoðraholt norður er krafa um að a.m.k. eitt bílastæði á íbúð sé í bílakjallara. Fyrirspurn þessi snýst um hvort bregða megi út af þessari kröfu fyrir 2. herbergja íbúðir sem eru að hámarki 9 talsins. Þessi stæði yrðu leyst út í götu innan lóðar hússins. Við götu er nú þegar reiknað með ca. 25-30 stæðum.
Hugmyndir þróunaraðila er að bjóða uppá fjölbreyttar íbúðagerðir, allt frá minni 2 herbergja íbúðum hugsaðar fyrir ungt fólk upp í stærri íbúðir fyrir fjölskyldur og eldra fólk.
Umsögn deiliskipulagshöfundar er jákvæð hvað þetta atriði varðar.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts Norður í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að umsóknin varðar ekki hagsmuni annarra en lóðarhafa og sveitarfélagsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

11. fundur

Lögð fram fyrirspurn uppbyggingaraðila í Þorraholti að sunnanverðu um minniháttar breytingar á deiliskipulagi þeirra fjölbýlishúsalóðar sem liggur næst Vetrarbraut. Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar Hnoðraholts norðurhluta.