Hvatapeningar 2023 (Reglur um hvatapeninga)
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
13. fundur
Hvatapeningar hækka úr 50.000,- í 55.000,- kr. fyrir hvert barn frá 5 ára til og með 18 ára.
Lagt fram til kynningar: Hvatapeningar hækka úr 50.000,- í 55.000,- kr. fyrir hvert barn frá 5 ára til og með 18 ára samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2023.
Bókun fulltrúa Framsóknar og Garðabæjarlista:
"Hækkun hvatapeninga er fagnaðarefni en betur má ef duga skal og er það skoðun Garðabæjarlistans og Framsóknar að lengra hefði þurft að ganga. Undanfarnar verðlagshækkanir eru þungar birgðar fyrir alla landsmenn og sérstaklega barnafjölskyldur. Tómstundir barna eru kostnaðarsamar og hvatapeningar flestum heimilum mikilvæg búbót".
Bæjarráð Garðabæjar
02
46. (2053). fundur
Bæjarráð samþykkir reglur um hvatapeninga árið 2023. Samkvæmt reglunum hækkar greiðsla hvatapeninga úr kr. 50.000 í kr. 55.000.