Beint í efni

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 4/1 ´23.

Málsnúmer 2301001F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

1. (916). fundur

Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 2. tl., auglýsingu umsóknarfrests vegna umsókna um afreksstyrki.

Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., hvatapeninga og óskaði eftir að bókun fulltrúa Garðabæjarlistans og Framsóknarflokksins í fundargerðinni verði færð til bókar í fundargerð bæjarstjórnar.

"Hækkun hvatapeninga er fagnaðarefni en betur má ef duga skal og er það skoðun Garðabæjarlistans og Framsóknar að lengra hefði þurft að ganga. Undanfarnar verðlagshækkanir eru þungar byrgðar fyrir alla landsmenn og sérstaklega barnafjölskyldur. Tómstundir barna eru kostnaðarsamar og hvatapeningar flestum heimilum mikilvæg búbót".

Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi 1. tl. hvatapeninga og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Fjárhagsáætlunarvinna felst ávallt í forgangsröðun fjármuna og áherslna. Í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023 er m.a. lögð áhersla á endurbætur og viðhald á skóla- og íþróttamannvirkjum í bænum auk mikillar innviðauppbyggingar í Urriðaholti. Nú sem áður er lögð áhersla á ábyrgan rekstur, lágar álögur og sterka fjárhagsstöðu bæjarins.
Alveg frá upphafi hefur mikil áhersla verið lögð á að efla og styðja við íþrótta- og tómstundastarf í bænum. Garðabær var t.d. fyrsta sveitarfélagið til að veita beinan fjárhagslegan styrk til þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi með hvatapeningum, árið 2005. Í fjárhagsáætlun ársins 2023 er áfram lögð áhersla á að styðja við fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf í bænum m.a. með hækkun hvatapeninga ásamt því að veita styrki til félaga í bænum. Garðabær setur hlutfallslega mest í íþrótta- og æskulýðsmál af stærri sveitarfélögum á Íslandi, m.a. í því skyni að styðja barnafjölskyldur í bænum og gera bæjarbúum, jafnt ungum sem öldnum, kleift á að lifa góðu og heilsusamlegu lífi.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins árétta að áætlunin var unnin í góðu samráði milli allra flokka sem allir samþykktu fjárhagsáætlun fyrir árið 2023, þar á meðal Framsókn og Garðabæjarlistinn.“

Ingvar Arnarson, ræddi að nýju 1 tl. hvatapeninga.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., hvatapeninga.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 1. tl., hvatpeninga.

Fundargerðin lögð fram.