Fundargerð bæjarráðs frá 17/1 ´23.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
1. (916). fundur
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 12. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 12. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.
Ingvar Arnarson, ræddi 12. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.
„Fyrirspurn Garðabæjarlistans varðandi úttekt Eflu á húsnæði Flataskóla frá 3. júlí 2019 og tengd mál:
1. Að hvaða tilefni var ákveðið að ráðast í úttekt á húsnæði Flataskóla vorið 2019?
2. Hverjir tóku ákvörðun um úttekt?
3. Hvaða aðilar fengu skýrslu úttektar?
4. Hvaða aðgerðir á húsnæði Flataskóla var ákveðið að ráðast í eftir úttekt Eflu? Óskað er eftir vísunum í skýrsluna þar sem við á.
5. Hvers vegna kom þessi skýrsla ekki fyrr fram í samskiptum bæjarins við foreldrafélag Flataskóla?
6. Hvaða rök voru fyrir því að hætta samskiptum við Eflu eftir afhendingu á skýrslu árið 2019 og leita til Mannvits?
7. Hvaða úttektir vegna gruns um rakaskemmdir og myglu hafa verið framkvæmdar á skólahúsnæði í Garðabæ frá árinu 2018?
8. Af hverju var skýrsla um úttekt í Hofsstaðaskóla frá árinu 2021 ekki aðgengileg fyrr en nú í janúar 2023?
9. Til hvaða aðgerða var gripið á grundvelli þeirrar úttektar?“
Ingvar Arnarson og Þorbjörg Þorvaldsdóttir bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 12. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 12. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.
Björg Fenger, ræddi 12. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði. Björg lagði fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
„Nú er stutt í að niðurstöður úr heildarúttekt á ástandi húsnæðis Flataskóla og Hofsstaðaskóla liggi fyrir. Framkvæmdir og undirbúningur þeirra munu fara af stað í beinu framhaldi af því. Í samþykktri fjárhagsáætlun 2023 er gert ráð fyrir verulegu fjármagni til endurbóta á húsnæði stofnana bæjarins á yfirstandandi ári og þar verða þessir tveir skólar settir í forgang.
Þegar hefur verið gripið til ráðstafana í báðum skólum varðandi lokun rýma þar sem mygla mældist í sýnatökum í haust. Þetta er gert skv. ráðgjöf sérfræðinga og í samræmi við það verkferli sem unnið hefur verið eftir síðan þá. Þekking á málefninu hefur aukist síðustu ár og vinnulag byggir nú á gagnsæi og opnum samskiptum, ávallt með heilsu og öryggi nemenda og starfsmanna að leiðarljósi. Starfsmenn, foreldrar og nemendur fá reglubundnar upplýsingar um stöðu mála í gegnum tölvupóst. Þá eru sérstakar upplýsingasíður aðgengilegar á vef bæjarins þar sem gögn vegna ástandsmats og framkvæmda í skólunum liggja frammi. Við áréttum mikilvægi þess að fullt traust sé á þeim ferlum sem unnið er eftir.
Það er lykilatriði að öll viðhaldsverkefni sem snúa að rakaskemmdum og myglu í skólum bæjarins fái algjöran forgang og séu ávallt unnin í fullu samráði við skólastjórnendur og með vitund starfsfólks þannig að koma megi í veg fyrir að forráðamenn, nemendur og starfsfólk þurfi að upplifa álag og óþægindi vegna slíkra mála.“
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi að nýju ræddi 12. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.
Almar Guðmundsson, ræddi 12. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 12. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Viðreisn leggur áherslu á gagnsæi og trausta upplýsingagjöf og ítrekar mikilvægi þess að verkferlar um skjölun gagna séu rýndir og bættir svo koma megi í veg fyrir ógagnsæi og ófullnægjandi upplýsingagjöf í jafn alvarlegum málum og á við um mál Flataskóla og óskjalaðra skýrslu frá árinu 2019.“
Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi Viðreisnar.
Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 12. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.
Fundargerðin sem er 12 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.