8. (2061). fundur
8. (2061). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
21.02.2023
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - varamaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2209382
01
Staða framkvæmda við byggingu leikskóla að Holtsvegi 20.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi með fulltrúum íbúa við Holtsveg 16-18 þar sem rædd voru sjónarmið íbúa sem koma fram í bréfi þeirra sem lagt var fram á fundi bæjarráðs 7. febrúar sl. Þar kemur fram krafa um að ekki verði gerð breyting á deiliskipulagi lóðarinnar í þeim tilgangi að húsnæði skólans verði að hluta tvær hæðir eins og upphafleg hönnun gerir ráð fyrir.
Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri kom á fund bæjarráð undir þessum lið og gerði grein fyrir mögulegum lausnum varðandi breytingar á deiliskipulagi og áhrifum þess á næsta nágrenni meðal annars m.t.t. skuggavarps.
Málsnúmer 2212136
02
Aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála í Flataskóla og Hofsstaðskóla að loknu vetrarfríi. Framkvæmdir við Flataskóla gengu vel en ekki tókst að ljúka framkvæmdum við þrjár stofur. Skólastarf hófst í húsnæði Flataskóla í gær en kennsla 7. bekkjar var í lausum kennslustofum og rými á Garðatorgi. Í Hofsstaðaskóla er enn unnið að viðgerðum á hluta húsnæðisins og var almennt skólahald fellt niður í gær og í dag. Dagana 22. til 24. febrúar verða svo svokallaðir uppbrotsdagar þar sem dagskrá og stundatöflu er þjappað saman og skóladagurinn verður frá kl. 8.30 til 12.00.
Bæjarstjóri upplýsti um að gerður hefur verið samningur við Auðnast sem veitir heildstæða þjónustu á sviði heilsuverndar. Sú þjónusta felur í sér að gæta heilsutengdra hagsmuna starfsfólks.
Málsnúmer 2302425
03
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi viðbúnað vegna vinnustöðvunar Eflingar stéttarfélags, dags. 15.02.23.
Í bréfinu er bent á mikilvægi þess að sveitarstjórnir hugi vel að viðbúnaði og áfallaþoli til að tryggja að ekki skapist hættuástand meðan vinnustöðvun varir.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2302284
04
Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga varðandi framboð í stjórn sjóðsins, dags. 10.02.23.
Málsnúmer 2302371
05
Bréf Hestamannafélagsins Spretts varðandi niðurfellingu fasteignagjalda 2023, dags. 14.02.23.
Bæjarráð samþykkir að veita Hestamannafélaginu Spretti styrk að fjárhæð kr. 919.846 til greiðslu fasteignagjalda af reiðskemmu árið 2023.
Málsnúmer 2302402
06
Bréf Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar varðandi niðurfellingu fasteignagjalda.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar styrk að fjárhæð kr. 12.010.007 til greiðslu fasteignagjalda af golfskála árið 2023.
Málsnúmer 2212287
07
Bréf Hraunprýði bygginga ehf. varðandi uppbyggingu á lóðinni við Hrauntungu, dags. 07.02.23.
Í bréfinu eru kynntar hugmyndir að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar Hrauntungu og uppbyggingar sérbýlishúsabyggðar á lóðinni.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2208619
08
Ársreikningur Garðabæjar 2022 - tillaga að afskriftum.
Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna árið 2022 samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 622.010.