Kynning á embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
10. (2063). fundur
Á fund bæjarráð mættu Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaður og Einar Jónsson staðgengill sýslumanns og sviðsstjóri fullnustu- og skiptasviðs. Gerðu þau grein fyrir starfsemi embættis sýslumanns, helstu verkefnum og fyrirkomulagi á samráði við sveitarfélög samkvæmt lögum um framkvæmdavald og stjórnsýslu ríkisins í héraði nr. 50/2014.
Sigríður Logadóttir, lögfræðingur og persónufulltrúi, sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð Garðabæjar
02
9. (2062). fundur
Í bréfinu er er vísað til samráðskyldu sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu við sveitarfélögin, sbr. 7. gr. laga um framkvæmdavald og stjórnsýslu ríkisins í héraði nr. 50/2014 og óskað eftir fundi með kjörnum fulltrúum Garðabæjar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um að verða við beiðni sýslumanns um samráðsfund.