Keldugata 4-14 (áður 4-20) húsnúmerabreyting
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
01
9. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að lóðin Keldugata 6-12 skiptist upp í 4 raðhúsalóðir, Keldugötu 6, Keldugötu 8, Keldugötu 10 og Keldugötu 12. Deiliskipulag gerir ráð fyrir 4 íbúðum í raðhúslengju á einni lóð.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Vesturhluta sbr.2.mgr.43.gr.Skipulagslagaa nr.123/2010. Í samræmi við 3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annara en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
7. fundur
Lögð fram tillaga Urriðaholts ehf að breytingu á húsnúmerum í Keldugötu í kjölfar deiliskipulagsbreytinga.
Keldugata nr.4-6 verður nr.4, Keldugata nr.8-12 verður nr.6-12 og Keldugata nr.20 verður nr.14.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts Vesturhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.