Beint í efni

9. (1918). fundur

03.03.2020
Bæjarráð Garðabæjar

9. (1918). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

03.03.2020

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 2002368

01

Tilkynning frá kjarasviði Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi stöðu kjaraviðræðna, dags. 26.02.20.

Lögð fram.

Málsnúmer 2002370

02

Bréf Alþings varðandi tillögu til þingsályktunar um stöðu barna tíu árum eftir hrun, 191. mál., dags. 25.02.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 2002354

03

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, 323. mál., dags. 25.02.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 2002403

04

Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar, 311. mál., dags. 27.02.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 2002308

05

Bréf Sorpu bs. varðandi beiðni um samþykki fyrir tímabundinni lántöku, dags. 24.02.20

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja beiðni stjórnar SORPU bs. um heimild til að auka tímabundið skammtímalántöku allt að 600 mkr. í formi yfirdráttarheimildar umfram forsendur fjárhagsáætlunar 2020. Tilgangur lántökunnar er til að skapa stjórnendum félagsins nauðsynlegt svigrúm til að undirbúa endurskoðun fjárhagsáætlunar og leggja grunn að traustri fjármálastjórn félagsins.

Sara Dögg Svanhildardóttir situr hjá við afgreiðslu málsins og leggur fram eftirfarandi bókun.

„Sveitarstjórnir þeirra sveitarfélaga sem eiga og reka Sorpu bs. bera endanlega ábyrgð á rekstri byggðasamlagsins. Því er það mat Garðabæjarlistans að bæjarfulltrúar fái að sjá og leggja mat á þær áætlanir sem liggja til grundvallar þeirri lánveitingu sem er til afgreiðslu. Ef bæjarfulltrúar eiga að bera ábyrgð á rekstri Sorpu þá er nauðsynlegt við kringumstæður eins og félagið er í núna að þeir fái að sjá þær áætlanir sem byggt er á.

Því kalla ég eftir eftirfarandi upplýsingum:

Bráðabirgðar ársreikning 2019.

Bráðabirgðaráætlun 2020.

Úttekt Mannvits á heildarkostnaði vegna GaJa.“

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1906094

06

Tillaga starfshóps um innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um val á yfirmarkmiðum.

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir tillögu starfshóps um val á verkefnum.

Bæjarráð þakkar starfshópnum sem skipaður er fulltrúum allra sviða fyrir vandaða vinnu og telur að góð rök liggi að baki niðurstöðum um val á einstaka verkefnum. Bæjarráð samþykkir að áfram verði unnið með þau verkefni sem starfshópurinn hefur valið

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu starfshópsins til umfjöllunar í fastanefndum bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2002307

07

Bréf Beit Sahour Municipality um vinabæjartengsl, dags. 19.02.20.

Bæjarráð þakkar bréfið og felur bæjarstjóra að svara bréfritara.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2002357

08

Bréf foreldrafélags Sjálandsskóla varðandi öryggi nemenda við Sjálandsskóla, ódags.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi með grunnstoðum þar sem málið kom til umræðu.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við fulltrúa í stjórn Foreldrafélags Sjálandsskóla til að fara nánar yfir með hvaða hætti megi tryggja sem best öryggi barna á skólalóð Sjálandsskóla.

Bæjarráð vísar erindinu til tækni- og umhverfissviðs í tengslum við undirbúning að gerð umferðaröryggisáætlunar Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2002292

09

Erindi Hrafnistu til Sjúkratrygginga Íslands um fjölgun dagdvalarrýma á Ísafold, dags. 20.02.20.

Bæjarráð lýsir yfir eindregnum stuðningi við beiðni Hrafnistu um fjölgun dagdvalarýma á Ísafold.

Fram kom að málið hefur verið kynnt í öldungaráði og unnið er að því í samvinnu Hrafnistu og þjónustumiðstöðvar Ísafoldar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2001444

10

Hættustig almannavarnarnefndar vegna Covid19.

Í framhaldi af fyrsta smiti kórónaveiru (Covid19) hefur ríkislögreglustjóri í samráði við sóttvarnalækni virkjað hættustig almannavarna.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðuskýrslu sem lögð var fram á fundi almannavarnanefndar föstudaginn 28. febrúar sl. Þar er m.a. farið yfir opinberar aðgerðir.

Boðað hefur verið til fundar forstöðumanna stofnana og bæjarfulltrúa með slökkviliðsstjóra í dag kl. 08:45.

Málsnúmer 2002399

11

Tilkynning frá Umhverfisstofnun varðandi áætlun og verklagsreglur um meðhöndlun úrgangs og smithættu af úrgangi vegna heimsfaraldurs, dags. 27.02.20.

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir að virkjaður hefur verið samstarfsvettvangur við sorphirðuverktaka um áætlun um meðhöndlun úrgangs og smithættu af úrgangi vegna heimsfaraldurs.

Fyrir liggja áætlanir hjá sorphirðuverktaka varðandi málið sem unnar eru samkvæmt leiðbeiningum yfirvalda.

Fylgiskjöl