Ósk um samþykki fyrir tímabundinni lántöku
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
4. (863). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,AG,JS,GE,GS) beiðni stjórnar SORPU bs. um heimild til að auka tímabundið skammtímalántöku allt að 600 mkr. í formi yfirdráttarheimildar umfram forsendur fjárhagsáætlunar 2020. Tilgangur lántökunnar er til að skapa stjórnendum félagsins nauðsynlegt svigrúm til að undirbúa endurskoðun fjárhagsáætlunar og leggja grunn að traustri fjármálastjórn félagsins.
Bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans (SDS,IA,HÞ) sitja hjá við afgreiðslu máslins.
Bæjarráð Garðabæjar
03
9. (1918). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja beiðni stjórnar SORPU bs. um heimild til að auka tímabundið skammtímalántöku allt að 600 mkr. í formi yfirdráttarheimildar umfram forsendur fjárhagsáætlunar 2020. Tilgangur lántökunnar er til að skapa stjórnendum félagsins nauðsynlegt svigrúm til að undirbúa endurskoðun fjárhagsáætlunar og leggja grunn að traustri fjármálastjórn félagsins.
Sara Dögg Svanhildardóttir situr hjá við afgreiðslu málsins og leggur fram eftirfarandi bókun.
„Sveitarstjórnir þeirra sveitarfélaga sem eiga og reka Sorpu bs. bera endanlega ábyrgð á rekstri byggðasamlagsins. Því er það mat Garðabæjarlistans að bæjarfulltrúar fái að sjá og leggja mat á þær áætlanir sem liggja til grundvallar þeirri lánveitingu sem er til afgreiðslu. Ef bæjarfulltrúar eiga að bera ábyrgð á rekstri Sorpu þá er nauðsynlegt við kringumstæður eins og félagið er í núna að þeir fái að sjá þær áætlanir sem byggt er á.
Því kalla ég eftir eftirfarandi upplýsingum:
Bráðabirgðar ársreikning 2019.
Bráðabirgðaráætlun 2020.
Úttekt Mannvits á heildarkostnaði vegna GaJa.“