1. fundur
1. fundur
Öldungaráð
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
08.02.2021
Kl. 08:30 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Anna Guðrún Hugadóttir - aðalmaður
- Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Rúnar Símonarson - aðalmaður
- Ólafur J Proppé - aðalmaður
- Margrét Björnsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir
- Hildigunnur Árnadóttir
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1906094
01
Innleiðing Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, Heilsueflandi Garðabæ, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Lagt fram til kynningar. Garðabær vinnur að innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem gilda til ársins 2030.
Um mitt ár 2019 var settur á fót starfshópur um innleiðingu heimsmarkmiðanna í Garðabæ. Í starfshópnum sitja fulltrúar frá öllum sviðum Garðabæjar auk verkefnastjóra og á hópurinn að vinna náið með nefndum og starfsmönnum bæjarins, félagasamtökum og öðrum tengdum aðilum.
Yfirmarkmið Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna eru 17 talsins og undirmarkmiðin 169. Starfshópur Garðabæjar valdi alls 38 undirmarkmið og var það álit starfshópsins að þau 38 undirmarkmið sem valin voru tengist vel inn á þrjár meginstoðir sjálfbærrar þróunar; efnahagslegar, félagslegar og umhverfislegar. Þessar stoðir eru grunnur að því að tryggja velferð einstaklinga og samfélaga með sjálfbærni til framtíðar í huga.
Skoða á hvernig stefnur Garðabæjar falla að undirmarkmiðunum.
Mál nr. 1906094 lagt fram til kynningar. Svanhildur Þengilsdóttir fór yfir stöðu innleiðingar heimsmarkmiðanna hjá Garðabæ sem staðið hefur yfir í 12 mánuði og áhrifa þeirrar innleiðingar á aðrar stefnur bæjarins þar á meðal stefnu í málefnum eldri borgara. Öldungaráð lýsir yfir ánægju sinni með þá vinnu sem unnin hefur verið við innleiðinguna.
Málsnúmer 2009056
03
Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2020
Lagt fram til kynningar. Fyrirtækið Gallup hefur sl. ár unnið þjónustukönnun á meðal íbúa í 20 stærstu sveitarfélögum landsins og spurt þar um viðhorf til þjónustu sveitarfélaga. Árið 2020 eru 422 sem svara í Garðabæ.
Það sem m.a. snýr að eldri borgurum er spurning um hversu ánægður/óánægður ertu með þjónustu við eldri borgara í sveitarfélaginu. Þar skorum við 3, 8 bæði 2019 og 2020 ( til samanburðar þá skorum við 4, 1 mtt. aðstöðu til íþróttaiðkunar. Í samanburði við önnur sveitarfélög þá erum við í 3,8 meðan þau eru í 3,5.
Tekið fyrir mál nr. 2009056, íbúakönnun Gallup 2020 í Garðabæ lögð fram til kynningar og umræðu. Formaður öldungaráðs fer yfir könnunina og helstu niðurstöður hennar. Könnunin hefur almennt komið vel út í Garðabæ og hafa niðurstöður hennar og vísbendingar verið nýttar til að bregðast við og bæta þjónustuna, til að mynda með notkun rýnihópa. Öldungaráð leggur áherslu á nákvæma rýningu niðurstaðna og að skoða tækifæri til úrbóta.
Málsnúmer 2101415
04
Málefni eldri borgara - stuðningsþjónusta
Gjaldskrá 2021 er lögð fram til kynningar.
Tekið er fyrir mál nr. 2101415, gjaldskrá stuðningsþjónustu lögð fram til kynningar. Svanhildur Þengilsdóttir fer yfir forsendur gjaldskránnar, gjaldflokkana og mismunandi nálgun sveitarfélaganna á höfðuborgarsvæðinu. Öldungaráð kemur á framfæri umræðu á meðal eldri borgara sem lýtur að einstaka þjónustuþáttum og að auka þurfi skýrleika og sundurliðun á reikningum frá Garðabæ vegna þjónustunnar.
Málsnúmer 2101428
05
Skýrsla starfshóps varðandi tillögur að heilsueflingu eldri borgara.
Lagt er fram til kynningar skýrsla starfshóps um Heilsueflingu aldraðra. Í skýrslunni sem er fjallað um eftirtalda þætti;
1. Mikilvægi heilsueflingar
2. Framtíðarsýn og meginmarkmið
3. Hlutverk ríkis og sveitarfélaga í heilsueflingu
4. Tillögur starfshóps
M.a er rætt um að bætt heilsa aldraðra sé ekki aðeins jákvæð fyrir líf þeirr heldur einnig þjóðhagslega hagkvæm þar sem aldraðir geti þá lengur búið í sjálfstæðri búsetu.
Sett eru markmið fram til ársins 2030 þar sem m.a. kemur fram að öll sveitarfélög hafi markað sér stefnu er varðar heilsueflingu fyrir aldraða og ýt frá henni gert aðgerðaráætlun með reglulegu stöðumati. eftirfylgni og árangursmælingum. Setja eigi gæða - og þjónustuviðmið sem bæði ríki og sveitarfélög vinna með og farið verði af stað með heilsueflandi samtöl.
Mál 2101428 tekið fyrir, skýrsla starfshóps um heilsueflingu aldraðra, og lagt fram til kynningar. Skýrslan setur fram metnaðarfull markmið til að stuðla að frekari forvörnum og frekari heilsueflingu með samstarfi ríkis og sveitarfélaga og hvetur sveitarfélög til að setja fram sérstaka aðgerðaráætlun í því sambandi. Garðabær er heilsueflandi samfélag og fylgist því grannt með stöðu mála í Garðabæ og leggur ríka áherslu á heilsueflingu í sinni stefnumótun í málaflokknum. Sömuleiðis er rík áhersla lögð á heilsueflingu eldri borgara á Heilsugæslu Garðabæjar. Öldungaráð tekur heilshugar undir þá þætti sem fjallað er um í skýrslunni og leggur áherslu á forvirkar aðgerðir.
Málsnúmer 2101524
06
Umsókn um endurbætur innanhúss á Hrafnistu Ísafold
Lagt fram til umsagnar öldungaráðs.
Sjómannadagsráð er fyrir hönd Hrafnistu Ísafold að fara að sækja um styrk til Framkvæmdasjóðs aldraðra og þarf að fylgja umsókninni umsögn öldungaráðs.
Óskað er eftir umsögn Öldungaráðs vegna umsóknar í framkvæmdasjóð aldraðra
Mál 2101524, umsókn um endurbætur innanhúss á Hrafnistu Ísafold, lagt fram til umsagnar. Öldungaráð er fylgjandi þeim fyrirætlunum Hrafnistu Ísafoldar að umsókn verði send til Framkvæmdastjóðsins vegna endurbóta.