Beint í efni

12. fundur

10.09.2019
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

12. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

10.09.2019

Kl. 15:30 - 17:45

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
  • Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 1908471

01

Endurskoðun samstarfssamnings

Fulltrúar UMFÁ eru boðaðir á fundinn til að skýra óskir sínar og starfsemi félagsins.

Formaður og framkvæmdastjóri UMFÁ mættu á fundinn og gerðu grein fyrir starfi félagsins. Sérstaklega var farið yfir starf blakdeildarinnar og framgang blakíþróttarinnar í bæjarfélaginu eftir að UMFÁ byrjaði með meistaraflokksstarf í efstu deild. Ráðinn hefur verið barna og unglingaþjálfari til starfa þar sem áhersla er lögð á 3. til 8. bekk.

Staða körfuboltadeildarinnar var líka rædd í ljósi óska þeirra um aukið fjármagn. Ljóst er að mikil gróska er í starfi meistaraflokka félagsins í körfu, blaki og knattspyrnu og fyrir liggur ósk frá félaginu um að bregðast við kostnaði sem fylgir auknum árangri og kröfum um umgjörð leikja.

Endurskoðun samstarfssamnings og fjárupphæða er vísað til fjárhagsáætlunargerðar fyrir 2020.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1908441

02

Ósk um viðbótarstyrk til Taflfélags Garðabæjar

Ósk um viðbótarstyrk vegna aukins kostnaðar við að fara upp um deild.

ÍTG samþykkir að veita Taflfélagi Garðabæjar kr.100.000,- í sérstakan styrk til eflingar starfsins í ljósi árangurs þess.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1908291

03

Mýrin vaktaplön

Kynning á nýju vaktafyrirkomulagi í T-Mhöllinni Mýrinni frá 1. sept 2019.

Íþróttafulltrúi upplýsti um breytingar á vinnutíma á vöktum í Mýrinni til að tryggja að alltaf væri bæði karl og kona á vakt til kl. 18:00 til að sinna klefavörslu yngri iðkenda.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1908055

04

Umsóknir um styrki frá NATA, samstarfssamningi Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála.

Félagasamtökum er bent á að nýta sér þá möguleika sem NATA samstarfssamningur Íslands, Færeyja og Grænlands hefur uppá að bjóða.

Málsnúmer 1908321

05

Endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar

Unnið er að endurnýjun á forvarnarstefnu Garðabæjar sem er frá 2014.

ÍTG er að hefja endurskoðun á forvarnarstefnu Garðabæjar. Ætlunin er m.a. að skoða með hvaða hætti stefnan tengist öðrum stefnum bæjarins, innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og Heimsmarkmiðunum. Stefnt er að gera aðgerðaráætlun á grundvelli endurskoðaðrar áætlunar sem hægt er að leggja fram við gerð fjárhagsáætlunar Garðabæjar fyrir árið 2020.

Umræður um Dale Carnegie námskeið sem haldið hefur verið undanfarin ár fyrir 13-15 ára unglinga sem búsettir eru í bænum. Námskeiðið er niðurgreitt að hluta af Garðabæ. Samþykkt að bjóða áfram upp á námskeið og mun það hefjast nú í október.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1909016

06

Aron Friðrik Georgsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Aron Friðrik Georgsson kt. 2602892849 vegna Kraftlyftingasambands Ísl. V-EM í Mílanó 5. sept 2019

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- til Arons Friðriks Georgssonar kt. 2602892849 vegna ferðar Kraftlyftingasambands Ísl. á Vestur Evrópumót í Mílanó 5. sept 2019

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1906003

07

Samsstarfssamningur við Vífil 2019

Kynning á nýjum samstarfssamningi við Skátafélagið Vífil

Nýr samstarfssamningur við Skátafélagið Vífil var kynntur.

Fylgiskjöl