Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs varðandi endurskoðun samstarfssamnings við UMF Álftanes.
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
12. fundur
Fulltrúar UMFÁ eru boðaðir á fundinn til að skýra óskir sínar og starfsemi félagsins.
Formaður og framkvæmdastjóri UMFÁ mættu á fundinn og gerðu grein fyrir starfi félagsins. Sérstaklega var farið yfir starf blakdeildarinnar og framgang blakíþróttarinnar í bæjarfélaginu eftir að UMFÁ byrjaði með meistaraflokksstarf í efstu deild. Ráðinn hefur verið barna og unglingaþjálfari til starfa þar sem áhersla er lögð á 3. til 8. bekk.
Staða körfuboltadeildarinnar var líka rædd í ljósi óska þeirra um aukið fjármagn. Ljóst er að mikil gróska er í starfi meistaraflokka félagsins í körfu, blaki og knattspyrnu og fyrir liggur ósk frá félaginu um að bregðast við kostnaði sem fylgir auknum árangri og kröfum um umgjörð leikja.
Endurskoðun samstarfssamnings og fjárupphæða er vísað til fjárhagsáætlunargerðar fyrir 2020.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
03
33. (1894). fundur
Í bréfinu er farið fram á endurskoðun á gildandandi samstarfssamningi sem gildir til 31.12.2020.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.