Beint í efni

Íþróttahátið íþrm ársins 2020

Málsnúmer 2011287

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

26. fundur

Val á íþróttakarli og íþróttakonu Garðabæjar 2020. Vefkosning íbúa er höfð til hliðsjónar.
Val á liði ársins 2020 í Garðabæ.
Val á þjálfurum ársins 2020 í Garðabæ.
Heiðursviðurkenningar vegna starfa að íþrótta- og tómstundamálum í Garðabæ.

Íþróttahátíð Garðabæjar 2021 fer fram í Sveinatungu sunnudaginn 10. janúar og verður send út á vef bæjarins.
ÍTG hefur samþykkt að veita eftirfarandi viðurkenningar:
Hilmar Snær Örvarsson skíðamaður er íþróttakarl Garðabæjar 2020.
Ágústa Edda Björnsdóttir hjólreiðamaður er íþróttakona Garðabæjar2020.
Lið ársins 2020 er Stjarnan meistaraflokkur karla í körfuknattleik - Þjálfari liðsins Arnar Guðjónsson.
Þjálfarar ársins 2020 eru; Elías Jónasson, barna- og unglingaþjálfari Stjörnunnar í handknattleik og Íris Ósk Hafþórsdóttir, knattspyrnuþjálfari stúlkna hjá UMFÁ.
Heiðursviðurkenningar vegna starfa að íþrótta- og tómstundamálum í Garðabæ hljóta; Gunnar Jónsson GKG, Lárus Guðmundsson KFG, Þorgerður Kristinsdóttir UMFÁ og Ingi Þór Hermannsson Oddi.
Vegna samkomutakmarkana voru aðrar viðurkenningar veittar fyrir jól. Fyrir framúrskarandi árangur hlutu 177 viðurkenningu, fyrir árangur á erlendum vettvangi einn, þáttöku með yngri landsliðum einn og fyrir þátttöku með A-landsliði einn.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

25. fundur

Vegna samkomutakmarkana við 10 manns fram yfir 12.janúar 2021 verður Íþróttahátíð Garðabæjar með nýju sniði. Útnefningu íþróttamanna ársins verður lýst og í beinni útsendingu á vef. Aðrar viðurkenningar verða teknar upp og sýndar á undan.

Vegna samkomutakmarkana við 10 manns fram yfir 12. janúar 2021 verður Íþróttahátíð Garðabæjar með nýju sniði. Útnefningu íþróttamanna ársins verður lýst í beinni útsendingu á vef þann 10. janúar nk.
Vefkosning verður opin almenningi til 2. janúar og gildir hún sem eitt atkvæði á móti 5 atkvæðum nefndarfólks ÍTG.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

24. fundur

Íþróttahátíð Garðabæjar vegna kjörs íþróttamanns ársins og viðurkenninga fyrir framúrskarandi árangur á árinu 2020 verður haldin 10. janúar 2021 kl. 13:00.
Vegna samkomutakmarkana verður að finna nýja útfærslu á athöfninni. Stefnt er að því að halda hátíðina en nánari útfærsla á framkvæmd bíður þar til vitað er hve margir mega koma saman.

Íþróttahátíð Garðabæjar vegna kjörs íþróttamanns ársins og viðurkenninga fyrir framúrskarandi árangur á árinu 2020 verður haldin 10. janúar 2021 kl. 13:00.
Vegna samkomutakmarkana verður að finna nýja útfærslu á athöfninni. Stefnt er að því að halda hátíðina en nánari útfærsla á framkvæmd bíður þar til vitað er hve margir mega koma saman.
Ákvörðun verður tekin á næsta fundi ÍTG.

Fylgiskjöl