Beint í efni

Skýrslu um velsæld og velferð íbúa Garðabæjar.

Málsnúmer 2009336

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

40. (1948). fundur

Á fund bæjarráðs kom Kári Jónsson, íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúi og gerði nánari grein fyrir skýrslu um velsæld og velferð íbúa Garðabæjar. Niðurstöður skýrslunnar verða notaðar til efla heilsu og vellíðan Garðbæinga með mismunandi áherslum eftir aldurshópum. Skýrslan er grunnur að mótun velsældarstefnu Garðabæjar.

Bæjarfulltrúarnir, Gunnar Valur Gíslason, Jóna Sæmundsdóttir, Sara Dögg Svanhildardóttir, Harpa Þorsteinsdóttir voru á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-3.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri var á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-3.

Fylgiskjöl

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

22. fundur

Lokaskýrsla um "Velsæld íbúa Garðabæjar"

Lokaskýrsla um "Velsæld íbúa Garðabæjar" var kynnt og farið yfir forsendur og helstu niðurstöður. ÍTG tekur undir þörf á nánari greiningu á stöðu og líðan aldurshópsins 18-44 ára eins og lagt er til í skýrslunni. Einnig að skoðað verði að fá heilsuræktarstöð fyrir almenning í Garðabæ í ljósi þess hve margir af yngri kynslóðinni leita út fyrir bæjarmörkin eftir slíkri þjónustu.

Fylgiskjöl