5. fundur
5. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
21.04.2021
Kl. 16:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Kristinn Guðlaugsson - varamaður
Starfsmenn
- Hildigunnur Árnadóttir - umsjónarfélagsráðgjafi
- Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Lýðræðisstefna Garðabæjar- endurskoðun
Lýðræðisstefna Garðabæjar lögð fram til kynningar.
Lagt er fyrir mál til kynningar nr. 1911163, lýðræðisstefna Garðabæjar. Hulda Hauksdóttir kynnir stöðu á vinnu við lýðræðisstefnu og áætlun um framvindu verkefnisins.
02
Umsókn um NPA (notendastýrð persónul. aðstoð) 2020
Lagt er fyrir mál nr. 2006352 áfrýjun vegna synjunar á beiðni um hækkkun á úthlutuðum NPA vinnustundum.
Tekið er fyrir mál nr. 2006352 áfrýjun vegna synjunar á beiðni um hækkun á úthlutuðum NPA vinnustundum. Samþykkt er að fjölga NPA vinnustundum. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
03
Sumarfrístund
Lagt er fyrir mál nr. 2103319 áfrýjun vegna synjunar afgreiðslufunds um stuðnings- og stoðþjónustu vegna sumarfrístundar.
Tekið er fyrir mál nr. 2103319 áfrýjun vegna synjunar afgreiðslufunds um stuðnings- og stoðþjónustu vegna sumarfrístundar. Ákvörðun afgreiðslufundar er staðfest. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
04
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Lagt er fyrir mál nr. 2103380, áfrýjun á synjun afgreiðslufundar fjárhagsaðstoðar á greiðslu fjárhagsaðstoðar aftur í tímann.
Tekið er fyrir mál nr. 2103380, áfrýjun á afgreiðslu afgreiðslufundar fjárhagsaðstoðar. Afgreiðsla fjölskyldusviðs er staðfest. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
05
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Lagt er fyrir mál nr. 2101231, áfrýjun á synjun um greiðslu fjárhagsaðstoðar aftur í tímann.
Tekið er fyrir mál nr. 2101231, áfrýjun á afgreiðslu afgreiðslufundar fjárhagsaðstoðar. Afgreiðsla fjölskyldusviðs er staðfest. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
06
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Lagt er fyir mál nr. 2104105, umsókn um styrk vegna tryggingar húsaleigu.
Tekið er fyrir mál nr. 2104105, umsókn um styrk vegna tryggingar húsaleigu. Samþykkt er að veita umsækjanda styrk vegna tryggingar húsaleigu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
07
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Lagt er fyrir mál nr. 2103392, áfrýjun vegna synjunar á fjárhagsaðstoð til framfærslu og beiðni um undanþágu frá hámarksupphæð styrks vegna sálfræðiviðtala.
Tekið er fyrir mál nr. 2103392, áfrýjun á afgreiðslu afgreiðslufundar fjárhagsaðstoðar. Beiðni umsækjanda er samþykkt að hluta. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
08
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Lagt er fyrir mál nr. 2102278, áfrýjun vegna synjunar á greiðslu fjárhagsaðstoðar til framfærslu.
Tekið er fyrir mál nr. 2102278, áfrýjun vegna synjunar á greiðslu fjárhagsaðstoðar til framfærslu. Afgreiðsla fjölskyldusviðs er staðfest. Nánar er bókað um málilð í trúnaðarhluta fundargerðar.
09
Átaksverkefni til að efla félagsstarf fullorðinna í samvinnu við sveitarfélögin
Í bréfi frá félagsmálaráðuneyti dags. 4. mars 2021, kemur fram að sveitarfélög geta sótt um styrk í sérstök viðbótarverkefni til að efla félagsstarf fullorðinna. Markmiðið er að rjúfa félagslega einangrun sem orðið hefur vegna COVID-19. Eldri borgarar hafa víða þurft að þola skerta samveru og félagslega einangrun vegna samkomutakmarkana og sjálfsskipaðrar sóttkvíar. Af þeim sökum er sérstaklega mikilvægt að leggja aukna áherslu á frístundaiðkun, geðrækt, hreyfingu, tæknilæsi og forvarnir með það að markmiðið að auka lífsgæði og heilbrigði fólks, fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun.
Uppfylli verkefnið markmiðið um aukið félagsstarf fullorðinna árið 2021 vegna COVID-19 fær Garðabær greiðslu í byrjun júní 2021.
Tekið er fyrir mál nr. 2103259, átaksverkefni til að efla félagsstarf fullorðinna í samvinnu við sveitarfélögin. Búið er að vinna umsókn sem felur í sér þá þætti sem gerð er krafa um að komi fram. Um er að ræða verkefni undir heitinu Félags- og heilsuefling eldri borgara og er sótt um alls kr. 4.171.684. Fjölskylduráð fagnar þessu framtaki og góðri vinnu á fjölskyldusviði.
10
Málefni eldri borgara - stuðningsþjónusta
Kynning á stuðnings-og öldrunarþjónustu í Garðabæ.
Kynningu á stuðnings- og öldrunarþjónustu í Garðabæ er frestað til næsta fundar fjölskylduráðs.