Beint í efni

1. fundur

06.03.2023
Öldungaráð

1. fundur

Öldungaráð

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

06.03.2023

Kl. 08:00 - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
  • Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
  • Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Ólafur J Proppé - aðalmaður
  • Margrét Björnsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þóra Gunnarsdóttir - forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu
  • Elín Þuríður Þorsteinsdóttir - deildarstjóri

Ritari

  • Svanhildur Þengilsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2301003

01

Gott að eldast - aðgerðaáætlun

Viljayfirlýsing um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk var undirrituð 21.06.2022. Þar sem kveðið er á um aukið samstarf og samvinnu varðandi málefni eldra fólks með það markmið að tryggja samhæfða þjónustu við hæfi á réttu þjónustustigi og á réttum tíma. Á það bæði við um stuðningsþjónustu sveitarfélaga og heilbrigðisþjónustu ríkisins. Markmiðið er að tryggja samhæfða þjónustu. Verkefnastjórn hefur það hlutverk að leiða vinnu við heildarendurskoðun þjónustunnar og útfæra tímasett markmið í aðgerðaáætlun til fjögurra ára og í framhaldi vinna að innleiðingu og framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar. Í september sl. var haldin vinnustofa um framtíð þjónustu við eldra fólk sem er hluti af vinnu heildarendurskoðunarinnar.

Öldungaráð telur að sá tími sem lagt er upp með í aðgerðaráætlun sé of langur en fram kemur að um sé að ræða tímabilið 2023-2027.

Málsnúmer 2302127

02

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2022

Á fundi bæjarráðs 14.2.2022 var þjónustukönnun Gallup meðal íbúa Garðabæjar 2022 vísað til umfjöllunar nefnda. Helstu niðurstöður þjónustukönnunar eru að almennt hækkar ánægja íbúa með þjónustu bæjarins á árinu 2022 og þegar á heildina er litið eru íbúar í Garðabæ ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í.

Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar, kynnti niðurstöður þjónustukönnunar Gallup í Garðabæ fyrir árið 2022, þar sem ánægja íbúa með þjónustuna hækkar almennt og íbúar eru ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í. Hækkun er á ánægju íbúa með þjónustu við eldri íbúa á milli ára.

Málsnúmer 2207498

03

Endurnýjun samstarfssamnings.

Skrifað hefur verið undir endurnýjun á samstarfssamningi Garðabæjar við Félag eldri borgara í Garðabæ um heilsu og líkamsrækt fyrir eldri borgara (60 ára og eldri) í Garðabæ og er hann lagður fram til kynningar.

Endurnýjaður samstarfssamningur Garðabæjar við Félag eldri borgara í Garðabæ um heilsu og líkamsrækt fyrir eldri borgara (60 ára og eldri) í Garðabæ, lagður fram til kynningar.

Málsnúmer 2205286

04

Aukið félagsstarf fullorðinna árið 2022 vegna COVID-19

Greinargerð sem unnin er að beiðni félags- og vinnumarkaðsráðuneytis vegna átaksverkefnis um aukið félagsstarf eldri borgara í Garðabæ árið 2022.

Greinargerð til félags- og vinnumarkaðsráðuneytis vegna átaksverkefnis um aukið félagsstarf eldri borgara í Garðabæ árið 2022 lögð fram til kynningar og umræðu.