9. fundur
9. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
26.10.2022
Kl. 16:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - umsjónarfélagsráðgjafi
- Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Samningur um samræmda móttöku flóttafólks
Drög að samningi um samræmda móttöku flóttafólks ásamt kröfulýsingu og kostnaðarlíkani.
Lagt fram til kynningar og umræðu. Guðrún Jónsdóttir, verkefnastjóri Garðabæjar vegna móttöku flóttafólks, mætti til fundar fjölskylduráðs og fór yfir samningsgögn og stöðu mála.
Fylgiskjöl
02
Svar við fyrirspurn Viðreisnar um framkvæmd og stöðu barnaverndarmála í Garðabæ.
Svar Hildigunnar Árnadóttur yfirfélagsráðgjafa fjölskyldusviðs við fyrirspurninni var vísað til umfjöllunar í fjölskylduráði á fundi bæjarráðs 11. október sl.
Fyrirliggjandi svör félagsráðgjafa fjölskyldsviðs voru lögð fram og rædd.
03
Breytt skipulag barnaverndar (umdæmisráð)
Á fundi stjórnar SSH hinn 3. október sl. var samráðshópi á sviði velferðarmála falið að vinna mál umdæmisráðs áfram og gera drög að samningi um sameiginlegt umdæmisráð auk kostnaðargreiningar og að drög yrðu lögð fyrir stjórn SSH þegar þau liggja fyrir. Sviðsstjórar velferðarsviða Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnesbæjar hafa hafið gerð að drögum að samningi um sameiginlegt umdæmisráð þeirra sveitarfélaga auk Kjósarhrepps. Stefnt er að leggja drög að samningi auk kostnaðargreiningar fyrir fund stjórnar SSH, 7. nóvember n.k.
Lagt fram til kynningar.
04
Samstarfssamningur sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um samráð og samstarf á sviði velferðarþjónustu.
Samstarfssamningur sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um samráð og samstarf á sviði velferðarþjónustu. Málið var á dagskrá bæjarráðs 18.10.2022.
Lagt fram til kynningar.
05
Tillaga um húsnæðismál fatlaðs fólks.
Áframhaldandi umræða frá síðasta fundi fjölskylduráðs þar sem starfsfólki fjölskyldusviðs var falið að hefja vinnu við yfirferð verklags um útvegun viðeigandi húsnæðis fyrir fatlað fólk.
Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði, kynnti stöðu núverandi verklags. Málið verður kynnt fyrir samráðshópi um málefni fatlaðs fólk á morgun, 27.10.2022, til að tryggja aðkomu hópsins að málinu.
Fylgiskjöl
06
Endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ
Málið var síðast á dagskrá á fundi fjölskylduráðs 16.03.2022 og er í vinnslu á fjölskyldusviði.
Vísað til áframhaldandi umfjöllunar á næsta fundi. Stefnt skal að því að endurskoðaðar reglur verði lagðar fram í fjölskylduráði í desember.
07
Tölulegar upplýsingar í húsnæðismálum
Svör við óformlegri fyrirspurn fulltrúa Garðabæjarlistans til fjölskyldusviðs um húsnæðismál
Svör fjölskyldusviðs vegna fyrirspurnar lögð fram.