Menntastefna 2022
Málsnúmer 2202263
Ferill máls
Fjölskylduráð Garðabæjar
01
2. fundur
Drög að menntastefnu 2022, lögð fram til kynningar og umræðu. Um er að ræða drög að núgildandi skólastefnu sem ætlað er að móta í víðtæku samráði við starfsfólk skólanna, börn í leik-, grunn- og tónlistarskólum, kjörna fulltrúa, starfsfólk og bæjarbúa.
Mál nr. 2202263, endurskoðun á menntastefnu Garðabæjar lögð fram til kynningar og umræðu. Eiríkur Björn Björgvinsson,sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti samráðsferli við endurskoðun á eldri og gildandi skólastefnu Garðabæjar og svaraði spurningum fundarmanna. Stefnunni er ætlað að leggja grunn að farsælu og framsæknu skólastarfi. Fjölskylduráð lýsir yfir ánægju með framlagða stefnu og góða vinnu.