Beint í efni

2. fundur

22.02.2023
Fjölskylduráð Garðabæjar

2. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

22.02.2023

Kl. 16:00 - 18:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • María Guðjónsdóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Theodóra Fanndal Torfadóttir - varamaður

Starfsmenn

  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Svanhildur Þengilsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2105720

01

Málefni heimilislausra í Garðabæ

Verkefnastjóri Kragans í málefnum heimilslausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir, Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir, kynnir stöðu verkefnisins.

Verkefnastjóri Kragans í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir, Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir, kynnti stöðu verkefnisins.

Málsnúmer 2301672

02

Tillaga um að tryggja frumkvæðisskyldu sveitarfélagsins.

Á fundi bæjarstjórnar 2.2.2023 var samþykkt að vísa tilögu Viðreisnar um að tryggja frumkvæðisskyldu sveitarfélagsins til fjölskylduráðs. Tillagan felur í sér að sviðsstjóra fjölskyldusviðs verði falið að rýna og taka út framkvæmd sviðsins á frumkvæðisskyldu sveitarfélagsins í þjónustu við fatlað fólk með það að markmiði að tryggja að frumkvæðisskyldu sé ávallt sinnt sem skyldi. Ásamt því að koma með tillögur að úrbótum á verkferlum ef slíkt eigi við í tilviki Garðabæjar.

Fjölskylduráð felur fjölskyldusviði að taka saman minnisblað um núverandi verklag og framkvæmd sviðsins á frumkvæðisskyldu sveitarfélagsins hvað varðar þjónustu við fatlað fólk. Minnisblað verði lagt fram á næsta fundi fjölskylduráðs.

Málsnúmer 2302127

03

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2022

Á fundi bæjarráðs 14.2.2022 var þjónustukönnun Gallup meðal íbúa Garðabæjar 2022 vísað til umfjöllunar nefnda. Helstu niðurstöður þjónustukönnunar eru að almennt hækkar ánægja íbúa með þjónustu bæjarins á árinu 2022 og þegar á heildina er litið eru íbúar í Garðabæ ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í.

Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar, kynnti niðurstöður þjónustukönnunar Gallup í Garðabæ fyrir árið 2022, þar sem ánægja íbúa með þjónustuna hækkar almennt og íbúar eru ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í. Meðaltal í könnun Gallup á þjónustu við fatlað fólk á meðal 20 stærstu sveitarfélaga landsins er 3,3 sem er það sama og niðurstaðan í Garðabæ.

Málsnúmer 2201363

04

Endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ

Málið var síðast á dagskrá á fundi fjölskylduráðs 26.10.2022 og er í vinnslu á fjölskyldusviði. Drög að endurskoðuðum reglum eru nú lögð fyrir ráðið.

Fjölskylduráð vísar framlögðum drögum að breytingu á reglum um fjárhagsaðstoð í Garðabæ til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2007223

05

Úthlutun í búsetukjarna - Brekkuás

Sjö einstaklingsíbúðum í búsetukjarna að Brekkuási hefur verið úthlutað til einstaklinga með samþykktar umsóknir á biðlista eftir sértæku búsetuúrræði. Frestur til svara er runninn út. Áætluð verklok eru í október 2023.

Sex einstaklingar hafa þegið boð um búsetu í búsetukjarna að Brekkuási. Áætluð verklok eru í október 2023. Sjöundu íbúð í búsetukjarnanum verður úthlutað þremur mánuðum fyrir áætluð verklok.

Málsnúmer 1909205

06

Jafnréttisstefna Garðabæjar 2019-2022

Núgildandi Jafnréttisstefna Garðabæjar er frá árinu 2019 og fjölmenningarstefna Garðabæjar er frá árinu 2014. Umræða um næstu skref.

Umræður um jafnréttistefnu Garðabæjar sem er frá árinu 2019 og gildir til 2022 og fjölmenningarstefnu Garðabæjar sem er frá 2014, vísað til áframhaldandi umræðu á næsta fundi.