Beint í efni

Tillaga um að tryggja frumkvæðisskyldu sveitarfélagsins.

Málsnúmer 2301672

Ferill máls

Fjölskylduráð Garðabæjar

01

3. fundur

Minnisblað fjölskyldusviðs um núverandi verklag og framkvæmd sviðsins á frumkvæðisskyldu sveitarfélagsins hvað varðar þjónustu við fatlað fólk lagt fram.

Minnisblað fjölskyldusviðs um núverandi verklag og framkvæmd sviðsins á frumkvæðisskyldu sveitarfélagsins hvað varðar þjónustu við fatlað fólk lagt fram til umræðu.

Fjölskylduráð Garðabæjar

02

2. fundur

Á fundi bæjarstjórnar 2.2.2023 var samþykkt að vísa tilögu Viðreisnar um að tryggja frumkvæðisskyldu sveitarfélagsins til fjölskylduráðs. Tillagan felur í sér að sviðsstjóra fjölskyldusviðs verði falið að rýna og taka út framkvæmd sviðsins á frumkvæðisskyldu sveitarfélagsins í þjónustu við fatlað fólk með það að markmiði að tryggja að frumkvæðisskyldu sé ávallt sinnt sem skyldi. Ásamt því að koma með tillögur að úrbótum á verkferlum ef slíkt eigi við í tilviki Garðabæjar.

Fjölskylduráð felur fjölskyldusviði að taka saman minnisblað um núverandi verklag og framkvæmd sviðsins á frumkvæðisskyldu sveitarfélagsins hvað varðar þjónustu við fatlað fólk. Minnisblað verði lagt fram á næsta fundi fjölskylduráðs.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

2. (917). fundur

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn samþykkir að fela sviðsstjóra fjölskyldusviðs að rýna og taka út framkvæmd sviðsins á frumkvæðisskyldu sveitarfélagsins með það að markmiði að tryggja að frumkvæðisskyldu sé ávallt sinnt sem skyldi. Ásamt því að koma með tillögur að úrbótum á verkferlum ef slíkt eigi við í tilviki Garðabæjar.
Samkvæmt 32. gr laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 segir: “Sveitarfélög skulu hafa frumkvæði að því að kynna sér aðstæður fatlaðs fólks og gera því grein fyrir rétti sínum samkvæmt lögum þessum og stjórnvaldsfyrirmælum settum á grundvelli þeirra. Sveitarfélag skal kynna umsækjanda þá þjónustu sem hann á rétt á og leiðbeina um réttarstöðu hans, m.a. ef hann á rétt á annarri þjónustu í stað þeirrar sem sótt er um eða til viðbótar henni.“

Greinargerð.
Í aðdraganda kosninga héldu Öryrkjabandalagið og Landssamtökin Þroskahjálp fundi um allt land í þeim tilgangi að fara yfir þær skyldur sem liggja á sveitarfélögum þegar kemur að þjónustu við fatlað fólk. Frumkvæðisskyldan var sérstaklega ávörpuð á þeim fundum. Reynslan sýnir að sveitarfélög standa sig almennt illa og jafnvel afar illa við að uppfylla frumkvæðisskylduna.
Á sveitarfélögum liggur sú frumkvæðisskylda að kynna réttindi og þjónustu fyrir fötluðu fólki ásamt því að aðstoða einstaklinga að sækja um þá þjónustu. Gríðarlega mikilvægt er að frumkvæðisskyldan sé alltaf virt en sérstaklega þegar fólk með þroskahömlun og/eða skyldar fatlanir eiga í hlut. Staða þeirra er ekki sú sama og annars fatlaðs fólks og því líklegra en ella að þau fari á mis við þau réttindi og þjónustu sem þau eiga rétt á. Getur það því leitt til mismununar á grundvelli fötlunar þegar frumkvæðisskyldu er ekki sinnt. Sömuleiðis gæti sú staða myndast þegar ný þjónustuúrræði taka gildi.
Í nýsamþykktri stefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga er kveðið á um að leita leiða til þess að efla og styrkja sveitarfélög um allt land til þess að sinna frumkvæðisskyldunni í samræmi við lög. Rétti tíminn er því núna hjá Garðabæ að taka út framkvæmdina á frumkvæðisskyldunni í Garðabæ.
Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi Viðreisnar.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls og lagði til að tillögunni verði vísað til fjölskylduráðs. Gunnar Valur lagði fram eftirfarandi bókun.

„Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja eðlilegt að umræða um frumkvæðisskyldu sveitarfélagsins fari fram á vettvangi fjölskylduráðs. Við teljum að almennt sé staða mála góð í Garðabæ hvað þetta varðar en að sjálfsögðu er mikilvægt að leita leiða til að bæta verklag frekar. Aðgengi að upplýsingum þarf að vera fyrir alla, verklag samræmt milli aðila sem veita þjónustu á ólíkum sviðum en um leið verður að gæta að persónuverndarsjónarmiðum.
Enginn vafi er á því að vinna við innleiðingu laga um farsæld barna og sú mikla áhersla sem lögð er á hana í fjárhagsáætlun og forgangsröðun verkefna á yfirstandandi ári mun tryggja framkvæmd frumkvæðisskyldunnar hjá sveitarfélaginu frekar í sessi.“

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls. Þorbjörg lagði fram eftirfarandi bókun.
„Garðabæjarlistinn tekur heilshugar undir tillögu Viðreisnar og leggur til að bæjarstjórn samþykki hana. Frumkvæðisskylda sveitarfélaga spilar lykilhlutverk í þjónustu við fatlað fólk og mikilvægt er að vera sívakandi fyrir tækifærum til umbóta.“

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa tillögunni til fjölskylduráðs.