Leigustyrkur - fjárhagsaðstoð
Ferill máls
Fjölskylduráð Garðabæjar
01
3. fundur
Mál nr. 2303266, leigustyrkur, fjárhagsaðstoð lagt fram til kynningar.
Í apríl 2022 tók góðgerðafélagið Einhorn 16 íbúðir í Urriðaholtsstræti 26 á leigu af Ölmu leigufélagi. Leigusamningur var gerður til eins árs og framleigði og niðurgreiddi Einhorn íbúðirnar til flóttafólks frá Úkraínu. Leigusamningi Einhorns við Ölmu leigufélag lýkur 31. mars nk. og 1. apríl nk. tekur Alma leigufélag við sem leigusali og hefur hækkað leiguverð íbúðanna.
Vegna erfiðra félagslegra aðstæðna nær allra íbúa í Urriðaholtsstræti 26 og mikilvægis þess að tryggja börnum þeirra stöðugleika og öruggan húsnæðiskost ákvað Garðabær að veita fjárhagsaðstoð til íbúa í formi leigustyrks að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Fjárhagsaðstoðin væru veitt tímabundið og þörf íbúa fyrir aðstoð endurskoðuð á 3 mánaða fresti.
Fjölskyldusvið útfærði tiltekin reikniviðmið sem litið var til við útfærslu leigustyrks. Við mat á útreikningum fyrir leigustyrk íbúa voru lagðar til grundvallar forsendur þar sem tekið var mið af tekjum og eignum heimilisfólks, greiðslubyrði vegna leigu, fjárhæð húsnæðisbóta og sérstaks húsnæðisstuðnings, fjölskyldusamsetningu auk þess sem lagt var mat á hvort leigustyrkurinn miðaði að því að viðhalda árangri sem náðst hefði með sérstökum úrræðum og markvissum stuðningi fjölskyldusviðs.
Þegar útreikningar lágu fyrir voru íbúar hverrar íbúðar upplýstir um þátttöku Garðabæjar í leigustyrk, með tölvupósti. Jafnframt var þeim gefinn kostur á að áfrýja ákvörðun fjölskyldusviðs til fjölskylduráðs.
Forsendur leigustyrks í formi fjárhagsaðstoðar lagðar fram til kynningar.