4. fundur
4. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í Ísafold, Strikinu 3
19.04.2023
Kl. 16:00 - 17:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi
- Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - umsjónarfélagsráðgjafi
- Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Snædís Björnsdóttir
Dagskrá
01
Kynning fyrir fjölskylduráð
Kynning á starfsemi Ísafoldar, hjúkrunarheimilis og dagdvalar.
Sara Pálmadóttir forstöðumaður Ísafoldar sat fundinn undir þessum dagskrárlið, kynnti starfsemi Ísafoldar hjúkrunarheimilis og dagdvalar og svaraði fyrirspurnum. Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu sat einnig fundinn undir þessum lið.
02
Fjölgun rýma í dagdvöl Ísafoldar
Minnisblað um fjölgun rýma í dagdvöl Hrafnistu var til umræðu í bæjarráði þann 18. apríl sl. Bæjarráð samþykkti að Garðabær styddi við umsókn Hrafnistu um fjölgun á dagdvalarrýmum á Ísafold úr 20 í 30 enda lægi fyrir að þörfin væri brýn og almenn ánægja væri með þjónustu dagdvalar Ísafoldar hjá þjónustuþegum og aðstandendum.
Minnisblað um fjölgun rýma í dagdvöl Hrafnistu lagt fram til kynningar. Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu sat fundinn undir þessum lið.
03
Framtíðarbygging íbúðakjarna í Hnoðraholti
Umræða um framtíðarbyggingu íbúðarkjarna í Hnoðraholti.
Umræður um framtíðarbyggingu íbúðarkjarna fyrir fatlað fólk.
04
Umsókn um fjárhagsaðstoð - leigustyrkur
Niðurstöðu afgreiðslufundar fjárhagsaðstoðar í máli nr. 2303222 frá 30.3.2023 er áfrýjað til fjölskylduráðs.
Tekið er fyrir mál nr. 2303222, umsókn um styrk til greiðslu húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og staðfestir afgreiðslu fjölskyldusviðs. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
05
Umsókn um fjárhagsaðstoð - leigustyrkur
Niðurstöðu afgreiðslufundar fjárhagsaðstoðar í máli nr. 2303182 frá 30.3.2023 er áfrýjað til fjölskylduráðs.
Tekið er fyrir mál nr. 2303182, umsókn um styrk til greiðslu húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og staðfestir afgreiðslu fjölskyldusviðs. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.