15. (930). fundur
15. (930). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
02.11.2023
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Stella Stefánsdóttir - varabæjarfulltrúi
- Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Harpa Þorsteinsdóttir - bæjarfulltrúi
- Sara Dögg Svanhildardóttir - bæjarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 19. október 2023 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 2310038F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 24/10 ´23.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 10. tl., tillögur leikskólanefndar varðandi betra starfsumhverfi í leikskólum Garðabæjar.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 10. tl., tillögur leikskólanefndar varðandi betra starfsumhverfi í leikskólum Garðabæjar.
Almar Guðmundsson, ræddi 10. tl., tillögur leikskólanefndar varðandi betra starfsumhverfi í leikskólum Garðabæjar.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 10. tl., tillögur leikskólanefndar varðandi betra starfsumhverfi í leikskólum Garðabæjar.
Fundargerðin sem er 19 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2310050F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 31/10 ´23.
Enginn kvaddi sér hljóðs.
Fundargerðin sem er 11 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2310036F
03
Fundargerð fjölskylduráðs frá 25/10 ´23.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., samræmda móttöku flóttafólks og 4. tl., jafnréttisáætlun Garðabæjar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 1. tl., samræmda móttöku flóttafólks og 4. tl., jafnréttisáætlun Garðabæjar.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., samræmda móttöku flóttafólks.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2310029F
04
Fundargerð leikskólanefndar frá 18/10 ´23.
Margrét Bjarnadóttir, ræddi 1. tl., tillögur að betra starfsumhverfi í leikskólum Garðabæjar.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2310040F
05
Fundargerð skólanefndar Tónlistarskóla frá 26/10 ´23.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2301664
06
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 30/10 ´23.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2301458
07
Fundargerðir samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgargsvæðisins frá 20/9, 27/9 og 13/10 ´23.
Fundargerðirnar lagðar fram.
Málsnúmer 2301318
08
Fundargerð stjórnar SSH frá 16/10 ´23.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., rekstur skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., rekstur skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2303672
09
Fundargerð eigendafundar Strætó bs. frá 16/10 ´23.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., fjárhagsáætlun 2024 og spurði um stöðu útboðsmála.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi 1. tl., fjárhagsáætlun 2024 og svaraði fyrirspurn.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls á ný.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, tók til máls á ný.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2305390
10
Fundargerð eigendafundar Sorpu bs. frá 16/10 ´23.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2301673
11
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 13/10 ´23.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna uppbyggingar Arnarlands.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2302122
12
Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 6/10 ´23.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2305582
13
Kosning fulltrúa í öldungaráð, íþrótta- og tómstundaráð og menningar- og safnanefnd.
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi breytingar á nefndarskipan.
Eysteinn Haraldsson, verður aðalfulltrúi í öldungaráði í stað Jörundar Jökulssonar sem beðist hefur lausnar frá setu í ráðinu.
Arnar Hólm Einarsson, verður aðalfulltrúi í íþrótta- og tómstundaráði í stað Svans Þorvaldssonar sem beðist hefur lausnar frá setu í ráðinu.
Arnar Hólm Einarsson verður varafulltrúi í menningar- og safnanefnd í stað Svans Þorvaldssonar sem beðist hefur lausnar frá setu í nefndinni.
Málsnúmer 2206112
14
Lántaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2023.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 1.000.000.000 samkvæmt lánssamningi nr. 2311_51G. Um er að ræða lán til sjö ára sem er endurgreitt með einni afborgun í lok lánstíma 2. nóvember 2030. Lánið er bundið vísitölu neysluverðs til verðtryggingar með grunnvísitölu í nóvember 2023 sem er 599,9 stig. Vextir eru verðtryggðir og reiknast af höfuðstól lánsins frá útborgunardegi. Vextirnir eru 3,70% árlegir og eru fastir allan lánstímann.
„Bæjarstjórn Garðabæ samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 1.000.000.000,- með lokagjalddaga þann 2. nóvember 2030, í samræmi við skilmála að lánssamningi sem liggur fyrir á fundinum og sem bæjarstjórnin hefur kynnt sér. Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnunar á framkvæmdum við Urriðaholtsskóla sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, kt. 030572-2979, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.“
Málsnúmer 2307150
15
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2024 (2024-2027) - fyrri umræða.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2024 - 2027. Bæjarstjóri lagði fram greinargerð þar sem helstu markmið og niðurstöður eru raktar nánar.
Bæjarstjóri lagði til að frumvarpinu verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Ég fagna því að Sjálfstæðisflokkurinn, meirihlutinn í bæjarstjórn Garðabæjar, hefur séð og viðurkennt það sem við í Viðreisn höfum kallað eftir um langt skeið. Að tekjur eru nauðsynlegar til þess að halda úti góðri þjónustu í þágu allra íbúa en ekki síður til þess að ástunda ábyrga fjármálastjórn.“
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Nú gerum við fjárhagsáætlun fyrir Garðabæ í mjög erfiðu umhverfi. Garðabær hefur stækkað mikið á undanförnum árum og við stöndum frammi fyrir því að þurfa að byggja upp innviði fyrir stór hverfi á sama tíma og fjármagnskostnaður hefur aukist gífurlega. Garðabær skuldar mjög háar fjárhæðir - um 1,7 milljón króna á hvern íbúa ef við horfum á ársreikning síðasta árs - og skuldir okkar munu fyrirsjáanlega vaxa áfram á næstu árum samhliða uppbyggingu.
Líkt og Garðabæjarlistinn hefur ítrekað nefnt hefur rekstur grunnþjónustu ekki verið sjálfbær undanfarin ár, en sala byggingarréttar hefur komið inn í bókhaldið á móti. Það var að okkar mati alltaf ljóst að þetta gengi ekki til lengri tíma og það er ágætt að Sjálfstæðisflokkurinn sjái það líka og taki nú það skref að leggja til hækkun á álagningu útsvars og taka rekstur A-sjóðs föstum tökum.
Afstaða Garðabæjarlistans á milli umræðna er skýr. Við þurfum við gerð fjárhagsáætlunar að halda þjónustu og rekstri bæjarins stöðugum og fjárfesta áfram í nauðsynlegum innviðum, á sama tíma og við verjum eftir fremsta megni þá hópa samfélagsins okkar sem hafa minnsta svigrúmið til þess að mæta því efnahagsástandi sem nú er: fólk sem ef til vill er nýbúið að koma þaki yfir höfuðið, sem hátt vaxtastig bítur á, fólk sem þarf fjölbreyttari húsnæðiskosti, fólkið sem finnur hvað mest fyrir verðhækkunum um allt samfélagið. Þetta er ærið verkefni og við í Garðabæjarlistanum vonum að í samtölum okkar við meirihlutann milli umræðna náist samstaða um þessi mál.“
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
„Leiðarljós Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ er ábyrgur rekstur bæjarfélagsins, lágar skattálögur og framúrskarandi þjónusta við bæjarbúa.
Ábyrgur rekstur, við mun meiri og lengur varandi óvissu í ytra umhverfi og efnahagsmálum undanfarin ár samfara ört stækkandi og yngri bæ, kallar nú á aðlögun rekstrar bæjarins að breyttum aðstæðum. Há verðbólga og gríðarleg hækkun vaxta ásamt miklum launahækkunum og auknum þunga velferðarmála hafa leitt til versnandi rekstrarskilyrða og við þeirri stöðu viljum við bregðast tímanlega og af ábyrgð.
Við ætlum að stórbæta rekstur A hluta bæjarsjóðs með hagræðingu í rekstri og hækkun álagningarhlutfalls útsvars ásamt því að draga tímabundið úr framkvæmdum, án þess þó að draga úr viðhaldi og endurbótum á fasteignum bæjarins sem ráðist var í af miklum krafti á árinu 2023.
Sú stefna okkar, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, er óbreytt að álagningarhlutfall útsvars í Garðabæ sé hið lægsta meðal stærstu sveitarfélaga landsins, að þjónustukannanir staðfesti áfram mikla ánægju íbúa með þá þjónustu sem bærinn veitir og að íbúar séu ávallt mjög ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í.
Frumvarp að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2024 og þrjú næstu ár sýnir að bæjarsjóður Garðabæjar stendur vel fjárhagslega. Þrátt fyrir að skuldaviðmið bæjarsjóðs hafi hækkað samhliða örum vexti bæjarins undanfarin ár er skuldaviðmið lágt og vel undir opinberum viðmiðunarmörkum. Þessi góða staða kemur sér vel. Uppbygging íbúðarsvæða er í fullum gangi og þörf verður fyrir áframhaldandi fjárfestingu í innviðum bæjarins á næstu árum.
Þótt staða bæjarsjóðs Garðabæjar sé sterk er það skylda bæjarstjórnar að laga reksturinn að breyttum forsendum og þeim efnahagsaðstæðum sem við blasa. Það hefur bæjarstjórn Garðabæjar áður gert með góðum árangri og staðið þannig vörð um hátt þjónustustig og lífsgæði fyrir íbúa í bænum.“
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju,
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls að nýju.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls að nýju.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls að nýju.
Almar Guðmundsson, tók til máls að nýju.
Samkvæmt frumvarpinu eru niðurstöður A og B hluta þessar:
2024 2025 2026 2027
Tekjur: 28.583.509 30.221.487 31.850.576 33.563.009
Gjöld: 24.095.645 25.544.421 26.961.199 28.436.531
Rekstrarniðurstaða f. afskriftir: 4.487.864 4.677.066 4.889.377 5.126.476
Afskriftir (1.745.190) (2.018.873) (2.177.992) (2.343.685)
Rekstrarniðurst. án fjárm.tekna/gjalda 2.742.674 2.658.693 2.711.385 2.782.793
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (2.163.873) (2.065.114) (1.923.667) (1.985.413)
Rekstrarniðurstaða 578.800 593.578 787.719 797.380
Framkvæmdir 4.977.000 4.965.000 4.886.000 5.083.000
Bæjarstjórn samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2024 - 2027 til síðari umræðu í bæjarstjórn og til frekari vinnslu í bæjarráði.