Beint í efni

Menningarviðburðir í grunn- og leikskólum í vetur.

Málsnúmer 2209221

Ferill máls

Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar

01

5. fundur

Ólöf Breiðfjörð kynnti menningardagskrá fyrir börn og ungmenni í Garðabæ og samstarfið við Tónlistarskóla Garðabæjar.

Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar

02

5. fundur

Einar Örn Magnússon einn forvígismanna Rökkvunnar fór yfir undirbúning og framkvæmd hátíðarinnar og ræddi framtíðarsýn. Þá ræddi hann um tengingu tónlistarskólans við hátíðina fyrir næstu Rökkvu hátíð.

Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar

03

5. fundur

Skólastjóri fór yfir skólastarfið í haust og starfið framundan.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

9. (924). fundur

Almar Guðmundsson, ræddi gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar og gerði grein fyrir að skólagjöldum er ætlað að standa undir öðrum kostnaði við skólareksturinn en launakostnaði kennara og skólastjóra.

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir skólaárið 2023 - 2024.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

9. (924). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

06

23. (2076). fundur

Bæjarráð vísar tillögu skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar varðandi gjaldskrá skólaárið 2023-2024 til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar

07

4. fundur

Skóladagatal Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir skólaárið 2023-2024 var lagt fram til kynningar og samþykktar.

Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar

08

4. fundur

Lögð var fram tillaga um hækkun gjaldskrár Tónlistarskóla Garðabæjar vegna skólaársins 2023- 2024. Lagt er til að hækka gjaldskrá um 9,5% sem er hækkun neysluverðsvísitölu sl. árs. Tillagan samhljóða samþykkt.

Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar

09

3.. fundur

Skólastjóri fór yfir skólastarfið. Mikið hefur verið um viðburði í skólanum frá áramótum s.s þátttaka í Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna, uppfærsla söngdeildar á óperunni Töfraflautunni, þá var dagur tónlistarskólanna haldinn 4. febrúar með 14 tónleikum fyrir fullu húsi. Framundan, fyrir utan hefbundið skólastarf samkvæmt skóladagatali, má nefna að skólinn tekur þátt í Nótunni uppskeruhátíð tónlistarskólanna í Hörpu. Allar blásarasveitirnar halda stórtónleika í Flóanum í Hörpu ásamt því fara á landsmót skólahljómsveita til Vestmannaeyja í maí. Þá tekur rytmadeildin þátt í jasshátíð Garðabæjar.

Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar

10

3.. fundur

Rætt var um gjaldskrá tónlistarskólans. Gjaldskráin sem nú er í gildi hækkaði um 7% sl. vor líkt og aðrar gjaldskrár hjá Garðabæ.

Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar

11

2. fundur

Einar Örn Magnússon fór yfir aðdraganda og framkvæmd Listahátíðarinnar Rökkvan.

Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar

12

2. fundur

Ólöf Breiðfjörð, menningarfulltrúi Garðabæjar kynnti dagskrá aðventuhátíðar í Garðabæ

Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar

13

2. fundur

Ólöf Breiðfjörð, menningarfulltrúi Garðabæjar fór yfir menningardagskrá fyrir börn í grunn- og leikskólum Garðabæjar.

Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar

14

2. fundur

Skólastjóri tónlistarskólans, fór yfir helstu viðburði í skólanum fram til jóla. Skólinn stendur t.a.m. fyrir 10 jólatónleikum, á fjórða tug jólatónfunda auk þátttöku í ýmsum viðburðum á aðventunni. Þá býður tónlistarskólinn öllum grunnskólanemendum í Garðabæ í 2. og 3. bekk á jólastund í skólanum.

Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar

15

2. fundur

Eiríkur Björn Björgvinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar, kynnti minnisblað um stöðu tónlistarkennslu í Garðabæ.

Skólanefnd Tónlistarskólans í Garðabæ leggur fram eftirfarandi bókun á fundi sínum dags. 21.11.2022 í framhaldi af minnisblaði um stöðu tónlistarkennslu í Garðabæ.

Garðabær hefur um árabil skipað sér í fremstu röð sveitarfélaga á landinu þegar kemur að aðgengi að tónlistarnámi fyrir íbúa. Í ljósi fjölgunar íbúa í Garðabæ og aukinnar eftirspurnar eftir tónlistarnámi er skólanefndin sammála um að farið verði af stað með vinnu við þarfagreiningu fyrir Tónlistarskólann. Með ítarlegri þarfagreiningu þarf að horfa til þess að skólinn geti stækkað, sinnt þörfum íbúanna og komið til móts við aukna eftirspurn eftir tónlistarnámi og fækkað nemendum á biðlistum. Í dag takmarkast kennsla Tónlistarskólans við húsnæðið því ekki er hægt að fjölga nemendum og vinna að fækkun nemenda á biðlista þrátt fyrir aukin stöðugildi þar sem ekki er kennslurými fyrir hendi. Eins og gert er ráð fyrir í þriggja ára áætlun bæjarins og með hliðsjón af því er mikilvægt að vinna þarfagreininguna á næsta ári þannig að nægur tími gefist til skoðunar og umfjöllunar.

Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar

16

1. fundur

Skólastjóri tónlistarskólans fór yfir starfsemi skólans og helstu áherslur í skólastarfinu til áramóta.

Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar

17

1. fundur

Farið var yfir samantekt um nokkur atriði er varða starfshætti nefnda.

Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar

18

1. fundur

Reglugerð tónlistarskólans lögð fram til kynningar.