2. fundur
2. fundur
Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
21.11.2022
Kl. 16:15 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Lilja Lind Pálsdóttir - formaður
- Einar Örn Magnússon - aðalmaður
- Sigrún Antonsdóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Tinna Borg Arnfinnsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Ólafsdóttir - skólastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
Ritari
- Edda Björg Sigurðardóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2209221
01
Aðventuhátíð Garðabæjar - Kynning
Ólöf Breiðfjörð, menningarfulltrúi Garðabæjar kynnti dagskrá aðventuhátíðar í Garðabæ
Málsnúmer 2209221
02
Menningarviðburðir fyrir skólahópa skólaárið 2022-2023.
Ólöf Breiðfjörð, menningarfulltrúi Garðabæjar fór yfir menningardagskrá fyrir börn í grunn- og leikskólum Garðabæjar.
Málsnúmer 2209221
03
Minnisblað um stöðu tónlistarkennslu í Garðabæ, dags. 20.10.22.
Eiríkur Björn Björgvinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar, kynnti minnisblað um stöðu tónlistarkennslu í Garðabæ.
Skólanefnd Tónlistarskólans í Garðabæ leggur fram eftirfarandi bókun á fundi sínum dags. 21.11.2022 í framhaldi af minnisblaði um stöðu tónlistarkennslu í Garðabæ.
Garðabær hefur um árabil skipað sér í fremstu röð sveitarfélaga á landinu þegar kemur að aðgengi að tónlistarnámi fyrir íbúa. Í ljósi fjölgunar íbúa í Garðabæ og aukinnar eftirspurnar eftir tónlistarnámi er skólanefndin sammála um að farið verði af stað með vinnu við þarfagreiningu fyrir Tónlistarskólann. Með ítarlegri þarfagreiningu þarf að horfa til þess að skólinn geti stækkað, sinnt þörfum íbúanna og komið til móts við aukna eftirspurn eftir tónlistarnámi og fækkað nemendum á biðlistum. Í dag takmarkast kennsla Tónlistarskólans við húsnæðið því ekki er hægt að fjölga nemendum og vinna að fækkun nemenda á biðlista þrátt fyrir aukin stöðugildi þar sem ekki er kennslurými fyrir hendi. Eins og gert er ráð fyrir í þriggja ára áætlun bæjarins og með hliðsjón af því er mikilvægt að vinna þarfagreininguna á næsta ári þannig að nægur tími gefist til skoðunar og umfjöllunar.
Málsnúmer 2209221
04
Listahátíðin Rökkvan.
Einar Örn Magnússon fór yfir aðdraganda og framkvæmd Listahátíðarinnar Rökkvan.
Málsnúmer 2209221
05
Starfsemi tónlistarskólans framundan.
Skólastjóri tónlistarskólans, fór yfir helstu viðburði í skólanum fram til jóla. Skólinn stendur t.a.m. fyrir 10 jólatónleikum, á fjórða tug jólatónfunda auk þátttöku í ýmsum viðburðum á aðventunni. Þá býður tónlistarskólinn öllum grunnskólanemendum í Garðabæ í 2. og 3. bekk á jólastund í skólanum.