3.. fundur
3.. fundur
Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
27.02.2023
Kl. 16:15 - 17:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Lilja Lind Pálsdóttir - formaður
- Einar Örn Magnússon - aðalmaður
- Sigrún Antonsdóttir - aðalmaður
- Sólveig Guðrún Geirsdóttir - varamaður
- Tinna Borg Arnfinnsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Ólafsdóttir - skólastjóri
- Edda Björg Sigurðardóttir - deildarstjóri skóladeildar
Ritari
- Laufey Ólafsdóttir
Fundinn sátu einnig, Guðbjörg Linda Udengard, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar.
Dagskrá
Málsnúmer 2209221
01
Skólagjöld Tónlistarskóla 2022-2023.
Rætt var um gjaldskrá tónlistarskólans. Gjaldskráin sem nú er í gildi hækkaði um 7% sl. vor líkt og aðrar gjaldskrár hjá Garðabæ.
Málsnúmer 2209221
02
Starfsemi Tónlistarskóla fram að sumri.
Skólastjóri fór yfir skólastarfið. Mikið hefur verið um viðburði í skólanum frá áramótum s.s þátttaka í Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna, uppfærsla söngdeildar á óperunni Töfraflautunni, þá var dagur tónlistarskólanna haldinn 4. febrúar með 14 tónleikum fyrir fullu húsi. Framundan, fyrir utan hefbundið skólastarf samkvæmt skóladagatali, má nefna að skólinn tekur þátt í Nótunni uppskeruhátíð tónlistarskólanna í Hörpu. Allar blásarasveitirnar halda stórtónleika í Flóanum í Hörpu ásamt því fara á landsmót skólahljómsveita til Vestmannaeyja í maí. Þá tekur rytmadeildin þátt í jasshátíð Garðabæjar.
Málsnúmer 2302127
03
Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2022
Hulda Hauksdóttir deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þjónustu kynnti niðurstöður úr íbúakönnun.