Vetrarbraut 2 - 4 - Deiliskipulagsbreyting
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
9. (924). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar vegna lóðarinnar við Vetrarbraut 2-4, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að gera ráð fyrir að bifreiðageymslur geti verið 2 hæðir og eykst byggingarmagn sem nemur því.
Skipulagsnefnd samþykkir samkvæmt heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og lóðarhafa.“ (Mál nr. 2305610)
Bæjarráð Garðabæjar
02
23. (2076). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar vegna lóðarinnar við Vetrarbraut 2-4, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að gera ráð fyrir að bifreiðageymslur geti verið 2 hæðir og eykst byggingarmagn sem nemur því.
Skipulagsnefnd samþykkir samkvæmt í heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og lóðarhafa.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
8. fundur
Lögð fram umsókn lóðarhafa um breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar sem nær til lóðarinnar Vetrarbraut 2-4 sem gerir ráð fyrir því að bifreiðageymslur geti verið 2 hæðir og eykst byggingarmagn sem því nemur.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.gr. sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en lóðarhafa og Garðabæjar.