Hönnun - Útboð - Urriðaholt malbikun gatna 2023
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
23. (2076). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við malbikun gatna í Urriðaholti.
Óskatak ehf. kr. 42.037.000
Malbikunarstöðin ehf. kr. 41.114.500
Loftorka Reykjavík kr. 44.630.000
Kostnaðaráætlun kr. 49.128.500
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Malbikunarstöðvarinnar ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.