Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Austurhraun 9.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
7. (2060). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns sem gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreit lóðarinnar við Austurhraun 9. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
2. fundur
Lögð tillaga að deiliskipulagi Molduhrauns sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur fyrir stakstæðar byggingar á lóðinni Austurhraun 9 sé felldur út og í stað þess stækki byggingarreitur lóðarinnar til norðvesturs. Ástæða tillögunnar er sú að áform um stækkun verksmiðjuhúsnæðisins hafa breyst.
Auglýsing í samræmi við 1.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 er lokið og engar athugasemdir hafa borist.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu deiliskipulags Molduhrauns í samræmi við 3.mgr.ofangreindrar lagagreinar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
17. (913). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna stækkunar byggingarreits á lóðinni við Austurhraun 9. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.“ [Mál nr. 2211254]
Bæjarráð Garðabæjar
04
43. (2050). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna stækkunar byggingarreits á lóðinni við Austurhraun 9. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
11. fundur
Lögð fram umsókn lóðarhafa Austurhrauns 9 um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur fyrir stakstæðar byggingar sé felldur út og í stað þess stækki byggingarreitur lóðarinnar til norðvesturs. Ástæða tillögunnar er sú að áform um stækkun verksmiðjuhúsnæðisins hafa breyst.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.greinar og 1.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.