Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 4.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
17. (2070). fundur
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 4. Tillagan sem gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar um 375 fm til norður var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.
Ingvar Arnarson greiðir atkvæði gegn tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
6. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns sem nær til lóðarinnar Kauptún 4 að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðar um 375 m2 til norðurs.
Tillagan var í auglýsingu frá 22.febrúar til 5.apríl.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Kauptúns í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
3. (918). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga vegna lóðarinnar við Kauptún 4. Tillagan gerir ráð stækkun lóðarinnar til norður um 375 fm.“ (Mál nr. 2301491)
Bæjarráð Garðabæjar
04
7. (2060). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga vegna lóðarinnar við Kauptún 4. Tillagan gerir ráð stækkun lóðarinnar til norður um 375 fm.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem nær til lóðarinnar Kauptún 4 (IKEA).
Lóðin Kauptún 4 stækkar til norðurs um 375 m². Lóðastærð fyrir breytingu er 73.269 m² en verður eftir breytingu 73.644 m².
Frágangur lóðamarka skal vera í samræmi við almenna skilmála sjá grein 6.5 Landslagsmótun og frágangur lóða.
Þó er heimilt að vinna hæðaraðlögun við stoðvegg í samræmi við skýringarsnið sem sýnd eru á uppdrætti,
enda verði gengið vandlega frá skeringunni með hraungrýti af svæðinu og lyngmóatorfi.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar sbr. 1.mgr.43.gr. og 31.gr.skipulagslaga nr.123/2010