Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Víkurgötu 21.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
17. (2070). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Víkurgötu 21. Tillagan sem heimilar að svalir nái út fyrir byggingarreit var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
6. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðarinnar Víkurgata 21 að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir heimild til að svalir nái út fyrir byggingarreit.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast í því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
3. (918). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverlega breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Víkurgötu 21. Tillagan gerir ráð fyrir heimild til að svalir nái út fyrir byggingarreit. Tillagan skal grenndarkynnt eigendum og íbúum við Víkurgötu 19, 23, 10, 12, og 14 samkvæmt 44. gr. skipulaglaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga.“ (Mál nr. 2210172)
Bæjarráð Garðabæjar
04
7. (2060). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverlega breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Víkurgötu 21. Tillagan gerir ráð fyrir heimild til að svalir nái út fyrir byggingarreit. Tillagan skal grenndarkynnt eigendum og íbúum við Víkurgötu 19, 23, 10, 12, og 14 samkvæmt 44. gr. skipulaglaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
2. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að svalir nái út fyrir byggingarreit.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Víkurgötu 19,23, 10,12 og 14.