Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Deildar og Landakots vegna lóðarinnar við Landakot.

Málsnúmer 2301315

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

17. (2070). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Deildar og Landakots vegna lóðarinnar við Landakot. Tillagan sem heimilar skiptingu lóðarinnar og tilfærslu á byggingarreit var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

6. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Deildar og Landakots á Álftanesi að lokinni auglýsingu.Tillagan gerir m.a.ráð fyrir skiptingu lóðar Landakots og tilfærslu á byggingarreit bílageymslu.
Tillagan var í auglýsingu frá 22.febrúar til 5.apríl.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Deildar og Landakots í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

3. (918). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Deildar og Landakots samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Tillagan gerir ráð fyrir skiptingu lóðarinnar við Landakot I og II ásamt því að skilgreina heimildir og skilmála fyrir báðar lóðirnar.“ (Mál nr. 2301315)

Bæjarráð Garðabæjar

04

7. (2060). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Deildar og Landakots samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Tillagan gerir ráð fyrir skiptingu lóðarinnar við Landakot I og II ásamt því að skilgreina heimildir og skilmála fyrir báðar lóðirnar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Deildar og Landakots á Álftanesi sem nær til lóðanna Landakot I og Landakot II.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar sbr. 1.mgr.43.gr. og 31.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Senda skal dreifibréf í aðliggjandi hús þar sem athygli er vakin á auglýsingunni.