Beiðni Strætó bs. um ábyrgð vegna lántöku.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
1. (897). fundur
Gunnar Einarsson gerði grein fyrir málinu og upplýsti að samþykki eigendafundar Strætó bs. liggur fyrir vegna lántökunnar.
„Bæjarstjórn samþykkir hér með að á fundi bæjarstjórnar að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68 gr. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, til tryggingar láns Strætó bs., kt. 500501-3160 hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að kr. 400.000.000 með lokagjalddaga 15. ágúst 2029, í samræmi við skilmála lánasamnings sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitastjórnin hefur kynnt sér. Nær samþykki sveitarstjórna jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir. Þá hefur sveitarstjórnin kynnt sér gildandi græna umgjörð Lánasjóðs sveitarfélaga og samþykkir að ráðstöfun lánsins falli að henni.
Er lánið tekið til fjárfestingar í rafvögnum til endurnýjunar í flota Strætó bs með það að markmiði að lækka kolefnisspor Strætó, sem felur í sér að vera verkefnis sem hefur almenna efnahagslega þýðingu sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaganna nr. 150/2006.
Jafnframt er Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, kt. 250555-4079 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. sveitarfélagsins að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.“
„Bæjarstjórn samþykkir að verða við beiðni stjórnar Strætó bs. að veita Strætó bs. einfalda ábyrgð vegna lántöku að fjárhæð kr. 300.000.000 hjá Arion banka.“
Bæjarráð Garðabæjar
02
1. (2008). fundur
Í bókuninni kemur fram að stjórn Strætó bs. og eigendafundur Strætó bs. hafa samþykkt að taka lán að fjárhæð kr. 400.000.000 hjá Lánasjóði sveitarfélaga og að fjárhæð kr. 300.000.000 hjá Arion banka.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.