Fundargerð fjölskylduráðs frá 15/12 ´21.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
1. (897). fundur
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar, 2. tl., niðurstöður starfshóps um kostnaðarþróun hjá sveitarfélögum á þjónustu við fatlað fólk, 3. tl., breytt skipulag barnaverndar og 4. tl., tillögu Garðabæjarlistans um endurskoðun á úthlutunarreglum félagslegs leiguhúsnæðis.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar og 4. tl., tillögu Garðabæjarlistans um endurskoðun á úthlutunarreglum félagslegs leiguhúsnæðis.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi stöðu mála varðandi byggingu búsetukjarna.
Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 1. tl., endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar og 4. tl., tillögu Garðabæjarlistans um endurskoðun á úthlutunarreglum félagslegs leiguhúsnæðis. Þá ræddi Almar stöðu mála varðandi byggingu búsetukjarna.
Gunnar Einarsson, ræddi stöðu mála varðandi byggingu búsetukjarna.
Fundargerðin lögð fram.